Innlent

Baráttudegi verkalýðsins fagnað víða um land

Anton Egilsson skrifar
Lúðrasveitin blæs í blásturshljóðfæri.
Lúðrasveitin blæs í blásturshljóðfæri. Vísir
Baráttudegi verkalýðsins er fagnað með margvíslegum hætti víða um land. Í frétt á vef Alþýðusambands Íslands segir að tilkynningar hafi borist um 1. maí hátíðarhöld í meira en 30 sveitarfélögum á landinu.

Í Reykjavík verður safnast saman við Hlemm um klukkan 13 og leggur kröfuganga af stað þaðan klukkan 13:30. Lúðrasveitir leika í göngunni. Gangan endar á Ingólfstorgi þar sem útifundur verður settur klukkan 14:10. Þar verður mikil dagskrá og fluttar verð ræður og tónlistaratriði. Öll dagskráin verður táknmálstúlkuð og Hulda M. Halldórsdóttir mun syngja á táknmáli í tónlistaratriðum.

Þá mun óformlegur hópur, Endurreisn Verkalýðs-hreyfingarinnar, standa fyrir útifundi á Austurvelli klukkan 14:15 undir yfirskriftinni: „Við viljum samfélagið okkar aftur! Við viljum hreyfinguna okkar aftur!”. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, og Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins, verða á meðal ræðumanna en fundarstjóri verður tónlistarmaðurinn KK.

Eftir að útifundinum á Ingólfstorgi líkurverða stóru stéttarfélögin í Reykjavík öll með vegleg kaffisamsæti víðsvegar um borgina.

Byggiðn og FIT bjóða félagsmönnum sínum og fjölskyldum þeirra til kaffisamsætis í Grand hóteli við Sigtún að loknum útifundi á Ingólfstorgi.

Efling – stéttarfélag býður félagsmönnum sínum upp á kaffi í Valsheimilinu að Hlíðarenda að hátíðarhöldunum loknum kl. 15.00.

Baráttukaffi Rafiðnaðarsambands Íslands, MATVÍS og Grafíu verður á Stórhöfða 27, 1 hæð gengið inn Grafarvogsmegin og hefst kl. 15.00.

VM - Félag vélstjóra og málmtæknimanna býður félagsmönnum sínum upp á kaffiveitingar að útifundum loknum í Gullhömrum milli kl. 15:00 og 17:00.

Nánari upplýsingar um hátíðarhöld um land allt má finna á vef Alþýðusambands Íslands. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×