Óhætt er að fullyrða að Íslendingar hafi tekið bandaríska verslunarrisanum Costco opnum örmum. Verslunin opnaði í Kauptúni í Garðabæ fyrir rúmum tveimur vikum og hefur ítrekað myndast röð við verslunina af áhugasömum viðskiptavinum.
Þá er Facebook-hópurinn Keypt í Costco Ísl. – Myndir og verð að öllum líkindum stærsti Facebook-hópur sem Íslendingar hafa safnast saman í en meðlimirnir eru nú rúmlega 78 þúsund talsins.
Til að mega versla í Costco þarf að gerast meðlimur hjá keðjunni og eru rúmlega 60 þúsund Íslendingar nú þegar greiðandi meðlimir hjá versluninni hér á landi.
En hvað eru þessir tugir þúsunda landsmanna að kaupa í Costco? Vísi lék forvitni á að vita hvaða vörur væru vinsælastar og sendi því fyrirspurn til Steven Pappas, aðstoðarforstjóra Costco í Evrópu.
Vinsælustu vörurnar í Costco á Íslandi eru eftirfarandi samkvæmt svari Pappas:
• Ferskir ávextir og ferskt grænmeti
• Pizza
• Sushi
• Kjöt, fiskur og kjúklingur
• Lífrænar matvörur
• Rakvélablöð
• Klósettpappír
• Íþróttavörur
• Grill
• Fatnaður
• Brauð, kökur og annað bakkelsi
• Þvottaefni
• Gleraugu
• Dekk
• Bensín og díselolía
Að sögn Pappas var salan í Costco í Garðabæ „mjög mikil“ fyrstu vikurnar og á pari við söluna á miklu stærri markaðssvæðum eins og í Japan, Kóreu og Bretlandi. Hann vill þó ekki gefa upp fjárhæðir í þessu samhengi.
Þá er opnunin hér á landi sú stærsta hjá Costco í nýju landi hvað varðar aðildafjölda en fyrra metið átti Melbourne í Ástralíu.
Ársaðild að Costco kostar 4.800 krónur fyrir einstakling og 3.800 krónur fyrir fyrirtæki. Langstærsti hluti þeirra sem eru með aðild eru einstaklingar og má því gróflega áætla að Íslendingar hafi greitt Costco nærri því 300 milljónir í aðildargjöld.
