Fótbolti

Skilaboð frá Frey þjálfara til stelpnanna okkar: Munu þá hreinsa úr ykkur tanngarðinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hallbera Guðný Gísladóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir í baráttu um boltann í leiknum á móti Hollandi í apríl.
Hallbera Guðný Gísladóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir í baráttu um boltann í leiknum á móti Hollandi í apríl. Vísir/Getty
Íslenska kvennalandsliðið mætir Írlandi í vináttuleik í kvöld og það er morgunljóst að Freyr Alexandersson, þjálfari liðsins, heimtar miklu betri leik en á móti Hollandi á dögunum þegar Ísland tapaði 4-0.

Landsliðskonan Hallbera Guðný Gísladóttir sagði frá skilaboðunum sem stelpurnar fengu frá Frey þjálfara í viðtali í Morgunblaðinu í morgun.

„Ég held að Freysi [Freyr Alexandersson, þjálfari] hafi orðað þetta vel á fundi í gær þegar hann sagði að ef við mættum til leiks eins og við gerðum gegn Hollandi þá mundu Írarnir „hreinsa úr okkur tanngarðinn“,“ sagði Hallbera í viðtali við Sindra Sverrisson í Morgunblaðinu.

Íslenska landsliðið er fjórtán sætum ofar en það írska á styrkleikalista FIFA og á því góða möguleika á því að komast aftur á sigurbraut eftir skellinn í Hollandi á dögunum.

„Þær írsku eru ekta grjótharðar píur úr breska boltanum og ef við ætlum að mæta með hálfum huga þá verður okkur refsað. Það er gott fyrir okkur að fá núna hörkuleik, því Hollandsleikurinn situr svolítið í okkur. Það er mikilvægt að bæta upp fyrir hann. Við fórum vel yfir hann, spiluðum þar langt undir getu, og þurfum að bæta fyrir það, aðallega gagnvart okkur sjálfum,“ sagði Hallbera í fyrrnefndu viðtali.

Hallbera Guðný Gísladóttir mun leika sinn 83. landsleik á móti Írum í Dublin í kvöld.  Leikurinn hefst klukkan 19.30 að staðartíma eða klukkan 18.30 að íslenskum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×