Innlent

Bæta lýsingu á Klambratúni og gera túnið að heitum reit

atli ísleifsson skrifar
Áætlað er að verkið hefjist í febrúar og ljúki í lok mars 2017.
Áætlað er að verkið hefjist í febrúar og ljúki í lok mars 2017. reykjavíkurborg
Borgarráð hefur samþykkt tillögu umhverfis- og skipulagssviðs um bætta lýsingu á Klambratúni. Í frétt á vef Reykjavíkurborgar segir að samhliða því verði sett upp þráðlaust net þannig að túnið verði svo kallaður „heitur reitur“.

Í fréttinni segir að erindi um að bæta lýsinguna hafi upphaflega borist frá hverfisráði Hlíða þar sem bent var á  að „ákveðnir skikar Klambratúns geti skapað hættu sökum slæmrar lýsingar.“

„Öllum lömpum á núverandi staurum verður skipt út, en þeir eru 20 talsins auk þess sem 24 nýjum ljósastaurum verður bætt við. Bil á milli ljósastaura verði 25m í stað 50m.

Núverandi lampar eru allir með 125W kvikasilfursperum, sem búið er að banna en þar að auki eru lamparnir orðnir gamlir og viðhaldsfrekir.

Nýju lamparnir sem settir verða upp verða með 31W LED ljósgjafa og hlýhvítri birtu (3000 °K).“

Áætlað er að verkið hefjist í febrúar og ljúki í lok mars 2017. Kostnaður er áætlaður 22,8 milljónir króna en þar af er hlutur Gagnaveitunnar viðlagningu ljósleiðara  3,4 milljónir króna.

Nánar má lesa um málið á vef Reykjavíkurborgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×