Greiðslur til þingmanna lækkaðar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. janúar 2017 13:45 Alþingi. vísir/ernir
Forsætisnefnd Alþingis samþykkti á fundi sínum í dag að lækka greiðslur vegna ferðakostnaðar og starfskostnaðar alþingismanna. Ferðakostnaður lækkar um 54 þúsund krónur og starfskostnaður um 50 þúsund krónur. Formenn flokkanna sem eiga sæti á Alþingi fóru þess á leit við forsætisnefnd í desember að reglur um þingfarakostnað, starfstengdar og fastar mánaðarlegar greiðslur til þingmanna væru teknar til endurskoðunar. Beiðnin var sett fram í tengslum við afgreiðslu Alþingis á frumvarpi um breytingar á kjararáði og í ljósi gagnrýni sem fram kom á kjör þingmanna á opinberum vettvangi eftir úrskurð kjararáðs í lok októbers sem fól í sér um 45 prósenta hækkun á þingfararkaupi. Í bréfi sem Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, sendi á fjölmiðla, segir að hún hafi lagt til á fundi forsætisnefndar í dag að lækka greiðslur fyrir ferðakostnaði í kjördæmi og starfskostnaði. Ferðakostnaður lækkar um 54 þúsúnd krónur og starfskostnaður lækkar um 50 þúsund krónur. Í bréfinu segir að hafa beri í huga að kostnaðargreiðslur séu ekki hugsaðar sem laun, þær eru skattfrjálsar að hluta, og verði því að uppreikna þær ef jafna á til launa. Í bréfinu segir að jafna megi lækkun ferðakostnaður við 100 þúsund krónur í launagreiðslu og því megi jafna samanlagðri lækkun við 150 þúsund krónur fyrir skatt, sem sé í samræmi við beiðni formanna flokkanna. Á fundi forsætisnefndarinnar var enn fremur samþykkt að taka núverandi lög um þingfararkaup og þingfararkostnað til endurskoðunar þar sem leiðarljósið verður einföldun og gagnsæi.
Tengdar fréttir Enginn vilji til að hrófla við úrskurði kjararáðs Einhugur er meðal formanna stjórnamálaflokkanna um að forsætisnefnd bregðist við úrskurði kjararáðs. Sveitarfélög bíða enn eftir niðurstöðu frá Alþingi um málið. 28. desember 2016 06:00 Deilt í forsætisnefnd um kjör þingmanna Forsætisnefnd fundaði um launakjör þingamanna á miðvikudag. Deilt var um hugmyndir um að lækka álögur á laun formanna og varaformanna fastanefnda. Nefndarmönnum þóttu tillögurnar vega að landsbyggðarþingmönnum. 27. desember 2016 05:00 Telur eðlilegt að endurskoða sérgreiðslur til þingmanna Steingrímur J. Sigfússon starfandi forseti Alþingis telur eðlilegt að endurskoða reglur um aukagreiðslur til þingmanna til að mæta gagnrýni vegna mikillar launahækkunar á síðasta ári. Forsætisnefnd Alþingis fundaði um málið í dag. 16. janúar 2017 18:36 Mest lesið Sprautan umdeilda sem fólk er tilbúið að borga fyrir út ævina Innlent Engu um að kenna nema „handónýtu kerfi“ Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent „Ekki næstum því allir íbúar með þetta app“ Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Fleiri fréttir Mikið um dýrðir í Íslandsboðinu í konungshöllinni Margir í vandræðum í Kömbunum Greiða atkvæði um verkfall í níu skólum fram á fimmtudag Ýmsar áhyggjur varðandi flóttamenn í JL-húsinu Ekkert á hreinu um næstu kosningar Snjóþekja á Hellisheiði Leynd yfir aðgerðum kennara og í beinni frá höllinni Ákærður fyrir að nauðga barnungri frænku sinni Milljónagreiðslur haldi stjórnarflokkunum saman Skorti langtímarannsóknir á áhrifum Ozempic og Wegovy Bílastæðin malbikuð og nýr útsýnispallur fyrir fatlað fólk Reyna að ná til nýbúa til að Ísland verði fyrsta reyklausa þjóðin Varaþingmaður Miðflokksins vill skoða að stofna íslenskt varnarlið Kennarar greiða atkvæði um verkfall Svandís og Sigurður Ingi verja flugvallarákvörðun Rukka fyrir stæðin í þjóðgarðinum Yazan og fjölskylda komin með vernd „Þetta er bara órætt okkar á milli“ Alvarleg staða á leikskólunum sem þurfi að taka á tafarlaust Ekkert nema styrkleikamerki að birta öryggisveikleika Hugmyndir VG um vorkosningar óræddar og Kópavogsmódelið í borginni Verður kominn í rafrænt eftirlit þremur árum eftir manndrápið Skjáskotin hafi ekki farið í dreifingu Innan við helmingur nú hlynntur flugvelli í Vatnsmýri „Eins og við höfum verið að hitta gamla vini” Flugfreyjurnar segjast eiga sinn þátt í flugævintýrinu Söguleg heimsókn konungshjónanna í Jónshús Skrifstofustjóri með tuttugu ára reynslu nýr ráðuneytisstjóri Þorbjörg ætlar sér fyrsta sætið Drottningin baðst afsökunar á því að geta ekki boðið betra veður Sjá meira
Enginn vilji til að hrófla við úrskurði kjararáðs Einhugur er meðal formanna stjórnamálaflokkanna um að forsætisnefnd bregðist við úrskurði kjararáðs. Sveitarfélög bíða enn eftir niðurstöðu frá Alþingi um málið. 28. desember 2016 06:00
Deilt í forsætisnefnd um kjör þingmanna Forsætisnefnd fundaði um launakjör þingamanna á miðvikudag. Deilt var um hugmyndir um að lækka álögur á laun formanna og varaformanna fastanefnda. Nefndarmönnum þóttu tillögurnar vega að landsbyggðarþingmönnum. 27. desember 2016 05:00
Telur eðlilegt að endurskoða sérgreiðslur til þingmanna Steingrímur J. Sigfússon starfandi forseti Alþingis telur eðlilegt að endurskoða reglur um aukagreiðslur til þingmanna til að mæta gagnrýni vegna mikillar launahækkunar á síðasta ári. Forsætisnefnd Alþingis fundaði um málið í dag. 16. janúar 2017 18:36