Fékk fallega afmæliskveðju fyrir fimm dögum en nú er honum hótað lögsókn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. júlí 2017 22:33 Aron Pálmarsson hefur unnið tvöfalt bæði tímabillin sín í Ungverjalandi. Vísir/Getty
Framtíð Arons Pálmarssonar hjá ungverska liðinu Veszprém er í miklu uppnámi eftir að íslenski landsliðsmaðurinn skrópaði á fyrstu æfingu félagsins á undirbúningstímabilinu eins og fram kom á Vísi fyrr í kvöld. ungverska félagið brást mjög illa við þessu og hraunaði yfir Aron á heimasíðu sinni og samfélagsmiðlum þar sem sagt var að Veszprém ætlaði að leita réttar síns þar sem Aron væri að brjóta samninginn með því að mæta ekki á fyrstu æfingu nýs tímabils. Aron var málaður sem egóisti sem væri bara að hugsa um sig sjálfan en ekki liðið og þá var gert lítið úr fagmennsku hans. Allt leit út fyrir að Aron færi ekki frá Veszprém fyrr en næsta sumar. Aron hefur gert samning við spænska stórliðið Barcelona um að spila með félaginu frá og með 2018-19 tímabilinu. Samingur hans við Veszprém rennur ekki út fyrr en í lok júní 2018 og þar sem viðræður Veszprém og Barcelona runnu út í sandinn þá bjuggust Ungverjarnir við að Aron spilaði með liðinu næsta vetur.pic.twitter.com/hQPhAm31Ta — VeszprémHandballTeam (@mkbveszpremkc) July 19, 2017 Fyrir aðeins fimm fögum síðan þá hélt Aron Pálmarsson upp á 27 ára afmælið sitt og fékk þá fallega afmæliskveðju frá Veszprém eins og sjá má hér fyrir ofan. Nú er hinsvegar komið allt annað hljóð í strokkinn og útlit fyrir að samskipti Arons og Veszprém endir fyrir dómstólum.
Handbolti Tengdar fréttir Veszprem höfðar mál gegn Aroni Pálmarssyni | Skrópaði á fyrstu æfingu Það er allt farið í bál og brand í samskiptum milli ungverska félagsins Veszprem og íslenska landsliðsmannsins Arons Pálmarssonar. 24. júlí 2017 21:50 Mest lesið Íslenska íþróttafólkið fékk gefins síma og smokka Sport „Ég varð fyrir vonbrigðum með Gylfa“ Íslenski boltinn Wembanyama mætti 57 sentímetra minni manni Körfubolti Þórir fékk gleðifréttir í gær Handbolti Uppgjörið: Drita - Breiðablik 1-0 | Evrópusumarið á enda runnið Fótbolti Anton Sveinn komst áfram í undanúrslit Sport Gylfi ekki með Val til Skotlands Fótbolti Fagnaði sigri á Ólympíuleikunum komin sjö mánuði á leið Sport Hringdi strax í ömmu sína og sýndi henni Ólympíugullið Sport Áfrýja stigafrádrættinum en ekki leikbanni þjálfarans fyrrverandi Fótbolti Fleiri fréttir Þórir með stelpurnar sínar á sigurbraut í París Þórir fékk gleðifréttir í gær Króatar misstu móðinn í seinni hálfleik Strákarnir hans Alfreðs Gísla skutu Japana niður á jörðina Norsku stelpurnar réttu úr kútnum og völtuðu yfir Dani Hrósaði Degi eftir nauman sigur Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Króatar lentu í kröppum dansi gegn fyrrum lærisveinum Dags „Martraðarbyrjun“ norska landsliðsins lýst sem fíaskói Þórir með besta leikmann heims utan hóps í fyrsta leik á ÓL Danir ósáttir með mötuneytið í Ólympíuþorpinu: Langar raðir og kjötið kláraðist Vésteinn hitti Þóri óvænt í Ólympíuþorpinu Íslenski Svíinn á ÓL: Talar um tárin í Tókýó og elskar að láta finna fyrir sér Mæðgurnar þjálfa saman hjá Val í vetur Unnu Noreg og tryggðu sér sjöunda sætið Kretzschmar kíkti í Fiskbúð Fúsa Strákarnir spila um sjöunda sætið á EM „Ég þarf bara að vinna mér inn sæti og það eru stór nöfn í þessu liði“ Misstu af undanúrslitunum eftir tap í úrslitaleik við Spánverja Haukur til Dinamo Búkarest Semur við ísraelskt lið stutt frá Gasa: „Besta tilboð sem ég hef fengið“ Guðmundur Bragi til Danmerkur Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar HK endurheimtir tvo leikmenn sem urðu Íslandsmeistarar með liðinu Sveinbjörn fyrsti íslenski handboltamaðurinn til að spila í Ísrael Íslensku strákarnir með bakið upp við vegg Valsmenn fá Króata í heimsókn Haukar mæta Hönunum frá Finnlandi Valskonur fara til Litháen og Haukar til Belgíu Sonur Söndru og Daníels kominn í heiminn Sjá meira
Veszprem höfðar mál gegn Aroni Pálmarssyni | Skrópaði á fyrstu æfingu Það er allt farið í bál og brand í samskiptum milli ungverska félagsins Veszprem og íslenska landsliðsmannsins Arons Pálmarssonar. 24. júlí 2017 21:50