Bíó og sjónvarp

Sjáðu stiklu úr Black Mirror-þættinum sem var tekinn upp á Íslandi

Birgir Olgeirsson skrifar
Þátturinn var tekinn upp hér á landi í febrúar og mars síðastliðnum.
Þátturinn var tekinn upp hér á landi í febrúar og mars síðastliðnum. Netflix
Nú hefur stikla litið dagsins ljós úr þættinum Crocodile sem verður sá þriðji í röðinni í fjórðu seríunni af Black Mirror. Þátturinn var tekinn upp hér á landi í febrúar síðastliðnum þar sem tökuliðið sást meðal annars í miðborg Reykjavíkur. Fóru tökurnar einnig fram í yfirgefinni hlöðu við Grænavatn og við Kleifarvatn í mats síðastliðnum.

Þátturinn mun fylgjast með persónum sem reyna að rifja upp tildrög bílslyss með hjálp tækninnar.

Leikstjóri þáttarins er John Hilcoat, sem á að baki myndirnar The Road og Lawless, en með aðalhlutverk fara Andre Riseborough, Andrew Gower og Kiran Sonia Sawar.

Íslenska framleiðslufyrirtækið True North hélt utan um tökur þáttarins hér á landi en tólf Íslendingar eru nefndir sem hluti af tökuteyminu, að því er fram kemur á vef IMDB.

Black Mirror er breskur vísindaskáldskapur úr smiðju Charlie Brooker þar sem má finna mikla háðsádeilu á nútímasamfélag og áhrif nútímatækni á það.

Hefur hver þáttur sjálfstæðan söguþráð sem gerist annað hvort í hliðstæðri veröld eða í nálægðri framtíð.

Fyrsti þátturinn var frumsýndur á Channel 4 í Bretlandi í desember árið 2011 en Netflix tók hann upp á sína arma og var þriðja þáttaröðin frumsýnd þar í fyrra.

Fjórða þáttaröðin verður sýnd á Netflix en ekki liggur fyrir hvenær hún verður frumsýnd.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.