Nýliðarnir lítil fyrirstaða fyrir Manchester City | Sjáðu mörkin Kristinn Páll Teitsson skrifar 12. ágúst 2017 18:15 Manchester City vann verðskuldaðan sigur á Brighton 2-0 í lokaleik dagsins í enska boltanum en sigurinn var síst of stór og voru yfirburðir gestanna miklir allt frá fyrstu mínútu. Gestirnir frá Manchester-borg sóttu af krafti strax frá byrjun en náðu ekki að skora í fyrri hálfleik. Kom Gabriel Jesus boltanum í netið í eitt skipti en markið var réttilega dæmt af þar sem Jesus notaði höndina til að stýra boltanum í netið. Tuttugu mínútum fyrir leikslok var enn markalaust en Sergio Aguero kom Manchester City yfir eftir góða skyndisókn. Vann Kevin De Bruyne boltann ofarlega á vellinum, fann David Silva sem laumaði boltanum inn á Aguero og sá argentínski kláraði vel. Aðeins fimm mínutum síðar kom annað mark Manchester City þegar Lewis Dunk setti boltann í eigið net af stuttu færi en það reyndist síðasta mark leiksins. Enski boltinn