Fólkið sem rauf þögnina manneskja ársins hjá Time Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 6. desember 2017 13:12 Á meðal tákngervinga #Metoo hjá time er tónlistarkonan Taylor Swift sem vakti athygli á árinu þegar hún kærði plötusnúð fyrir kynferðislega áreitni. Skjáskot
Fólkið sem rauf þögnina og ræddi opinskátt um kynferðislega áreitni og kynferðisofbeldi eru manneskja ársins að mati tímaritsins Time. „Þetta varð myllumerki, hreyfing, uppgjör. En byrjaði, eins og samfélagsbreytingar gera gjarnan, með einstöku hugrekki,“ segir í rökstuðningi tímaritsins. „Leikarinn sem steig fram með söguna af naugðunartilburðum kvikmyndarisans Harvey Weinstein í hótelsvítu Beverly Hills tveimur áratugum fyrr. Jarðaberjatínslukonan sem heyrði söguna og ákvað að segja sína eigin. Bloggfærsla unga verkfræðingsins um gauramenninguna í stærsta sprotafyrirtækinu í Sílíkondal sem olli því að fyrirtækið rak stofnandann og tuttugu aðra starfsmenn. Lobbíistinn frá Kaliforníu sem skrifaði bréf og veitti 140 stjórnmálakonum innblástur til að krefjast þess að ríkisyfirvöld umberi ekki lengur gerendur og þá sem gera þeim kleift að brjóta kynferðislega á fólki. Hrár og ögrandi vitnisburður stórstjörnunnar um plötusnúðinn sem káfaði henni.“ Ashley Judd, Susan Fowler, Adama Iwu, Taylor Swift og Isabel Pascual eru tákngervingar byltingarinnar á forsíðu Time. Allar hafa þær verið áberandi í umræðunni síðustu mánuði um kynferðisofbeldi og kynferðislega áreitni. Spilaborg sem hrundi Síðan fréttir voru fyrst sagðar þann 5. október af kynferðislegri áreitni Harvey Weinstein hafa fjölmargar konur og karlar stigið fram í Bandaríkjunum og ásakað leikara, leikstjóra, tónlistarmenn, stjórnmálamenn og aðra áhrifamenn um kynferðislega áreitni, nauðgun og ýmsa óviðeigandi hegðun í sinn garð. Slíkar ásakanir hafa orðið til þess að framleiðslu fjölmargra sjónvarpsþátta og kvikmynda hefur verið hætt. Að sama skapi var leikaranum Kevin Spacey skipt út fyrir leikarann Christopher Plummer í nýjustu kvikmynd Ridleys Scott, All the Money in the World. Ashley Judd, Susan Fowler, Adama Iwu, Taylor Swift og Isabel Pascual eru á forsíðu tímaritsins.TIME Áhrifa byltingarinnar sem á sér stað í skemmtanabransanum í Bandaríkjunum gætir einnig innan stjórnmálanna í Bandaríkjunum og hafa að minnsta kosti tveir öldungadeildarþingmenn verið nefndir til sögunnar. Annar þeirra er John Conyers, öldungadeildarþingmaður Demókrata í Bandaríkjunum til margra ára, sem viðurkennt hefur að hafa greitt fyrrverandi starfskonu sinni bætur eftir að hún sakaði hann um kynferðislega áreitni árið 2015. Demókratar brugðust skjótt við og hafa nú hafið rannsókn á málinu innan siðferðiseftirlitsnefndar flokksins. Gerðu hvísluleikinn opinberan Hér á landi hefur byltingin einnig haft áhrif. Á fimmta hundrað stjórnmálakonur skrifuðu undir yfirlýsingu á dögunum þar sem þær kölluðu eftir breytingum á stjórnmálamenningu landsins og sögðu frá ofbeldi sem þær höfðu orðið fyrir. Ein konan lýsti nauðgun sem hún varð fyrir í gleðskap á vegum stjórnmálaflokks. Þá hafa konur í sviðslistum og kvikmyndaiðnaði einnig opnað umræðuna um ofbeldi í sínum geira. Tjaldið féll og í ljós komu grófar sögur af kynferðislegri áreitni og kynferðisofbeldi á vinnustað. Sömuleiðis hafa konur í vísindum einnig stigið fram og krafist breytinga og enn eru að myndast hópar íslenskra kvenna sem vilja segja hingað og ekki lengra. Ráðherrar hafa brugðist við #Metoo byltingunni, sem og rektorar, leikhússtjórar og stjórnmálamenn. „Fyrir að veita fólki rödd til að greina frá leyndarmálum, fyrir að færa hvísluleikinn inn á hinn opinbera vettvang, fyrir að hvetja okkur öll til að hætta að sætta okkur við hið óásættanlega, eru konurnar sem rufu þögnina manneskja ársins 2017.“
MeToo Kynferðisofbeldi Fjölmiðlar Tengdar fréttir Verst geymda leyndarmál Hollywood í áratugi Harvey Weinstein hefur verið einn valdamesti maðurinn í Hollywood í áratugi. Hann hefur nú verið rekinn frá framleiðslufyrirtæki sínu og er á leið í meðferð við kynlífsfíkn. 12. október 2017 12:45 Tjaldið fellur: Konur úr sviðslistum og kvikmyndagerð segja frá ofbeldi og kynferðislegri áreitni 548 konur hafa deilt reynslusögum af kynferðisofbeldi, áreitni og mismunum innan leiklistarstéttarinnar á Íslandi. 27. nóvember 2017 20:01 Tjaldið fellur: Klöguð fyrir að slíta sig lausa frá rísandi Hollywood-stjörnu Afþakkaði boð um að mæta í partí með vinkonum sínum hjá heimsfrægri stjörnu sem var sagt geta greitt leið hennar í Hollywood. 27. nóvember 2017 21:09 Dæmi um nauðgun á vettvangi stjórnmálanna Fjöldi kvenna greinir frá fjölþættri kynferðislegri áreitni og ofbeldi. 24. nóvember 2017 09:00 Kynferðisbrot kvikmyndaframleiðanda komu Trump ekki á óvart Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein hefur látið verulegt fé af hendi rakna í kosningasjóði demókrata í gegnum tíðina. 8. október 2017 10:49 Swift segir mann hafa káfað á berum rassi hennar Málaferli standa nú yfir þar sem fyrrverandi útvarpsmaður segir söngkonuna Taylor Swift hafa kostað sig vinnuna. 10. ágúst 2017 18:53 Mest lesið Silja Björk biður Ingó afsökunar Innlent Helgi í Góu og fyrrverandi borguðu brúsann Innlent Albert mættur í dómsal Innlent Skilur ekkert í niðurstöðu Guðrúnar Innlent Svarar fyrir að hafa banað syni sínum í Kópavogi Innlent Talinn hafa svipt barn frelsi sem hann grunaði um að stela veipi Innlent Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Erlent „Fólk fer hreinlega grátandi frá mér“ Innlent „Lærisveinn“ Pélicot sagður hafa beitt sömu aðferðum á eigin konu Erlent Sigurður Helgi Guðjónsson látinn Innlent Fleiri fréttir Trump vígreifur en veit betur Bon Jovi lofaður fyrir að bjarga konu í sjálfsvígshugleiðingum Fyrsta geimganga óbreyttra borgara Fujimori er látinn „Lærisveinn“ Pélicot sagður hafa beitt sömu aðferðum á eigin konu 171 handtekinn og 402 börnum bjargað í aðgerðum í Malasíu Sex starfsmenn UNRWA sagðir hafa verið drepnir í árás Ísraelshers Gerði sér mat úr kattaráti andlega veikrar konu Sprengdu yfirgefinn skýjakljúf í Lousiana Daunill þróun í metanlosun mannkynsins Baráttan um Bandaríkin: Sögulegar kappræður gerðar upp Gætu leyft Úkraínu að nota langdræg flugskeyti gegn Rússlandi Krefjast þess að Ísraelsher bæti ráð sitt eftir dráp á Bandaríkjamanni Brú yfir Saxelfi hrundi í Dresden Trump í mikilli vörn en lýsir yfir sigri 1,4 milljarðar króna fyrir að mæta ekki fyrir rétt Bein útsending: Harris og Trump takast á í fyrsta sinn Sveik 1,3 milljarða úr streymisveitum með gervispilunum Trump verði áfram Trump en meira í húfi fyrir Harris Verður næsti utanríkisráðherra Svíþjóðar Hafa fengið skotflaugar frá Íran Reglur kvöldsins: Engir áhorfendur og slökkt á meðan hinn talar Siðblindur raðlygari sem sýndi aðra hlið út á við Ætla í fyrstu borgaralegu geimgönguna Handtekinn í Dubaí Rannsókn hafin en efasemdir uppi um sekt Letby Auglýsa eftir upplýsingum um 28 ára gamalt morðmál Brú hrundi eftir gríðarlegan fellibyl Weinstein fluttur í flýti í bráðaaðgerð Þjóðverjar herða tökin á landamærum Sjá meira
Verst geymda leyndarmál Hollywood í áratugi Harvey Weinstein hefur verið einn valdamesti maðurinn í Hollywood í áratugi. Hann hefur nú verið rekinn frá framleiðslufyrirtæki sínu og er á leið í meðferð við kynlífsfíkn. 12. október 2017 12:45
Tjaldið fellur: Konur úr sviðslistum og kvikmyndagerð segja frá ofbeldi og kynferðislegri áreitni 548 konur hafa deilt reynslusögum af kynferðisofbeldi, áreitni og mismunum innan leiklistarstéttarinnar á Íslandi. 27. nóvember 2017 20:01
Tjaldið fellur: Klöguð fyrir að slíta sig lausa frá rísandi Hollywood-stjörnu Afþakkaði boð um að mæta í partí með vinkonum sínum hjá heimsfrægri stjörnu sem var sagt geta greitt leið hennar í Hollywood. 27. nóvember 2017 21:09
Dæmi um nauðgun á vettvangi stjórnmálanna Fjöldi kvenna greinir frá fjölþættri kynferðislegri áreitni og ofbeldi. 24. nóvember 2017 09:00
Kynferðisbrot kvikmyndaframleiðanda komu Trump ekki á óvart Kvikmyndaframleiðandinn Harvey Weinstein hefur látið verulegt fé af hendi rakna í kosningasjóði demókrata í gegnum tíðina. 8. október 2017 10:49
Swift segir mann hafa káfað á berum rassi hennar Málaferli standa nú yfir þar sem fyrrverandi útvarpsmaður segir söngkonuna Taylor Swift hafa kostað sig vinnuna. 10. ágúst 2017 18:53