Hægt að framselja sakborninga en ekki vitni

Maðurinn kom fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis og staðfesti þann framburð sem hann hafði áður gefið hjá lögreglu. Hann sætir ekki farbanni og er því frjáls ferða sinna en hefur þó enn réttarstöðu grunaðs manns.
Jón H.B. Snorrason, yfirsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sagði í samtali við fréttastofu í dag að þó að hann vildi ekki fara út í einstaka þætti málsins þá væri maðurinn að sjálfsögðu ekki laus ef hann væri sakaður um manndráp.
„Ef hann væri sakaður um þetta manndráp þá væri hann að sjálfsögðu ekki laus,“ sagði Jón H.B.
Geta enn óskað eftir yfirheyrslum
Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn málsins, segir að þó maðurinn fari úr landi geti lögreglan enn óskað eftir yfirheyrslum.
„Almennt séð ef það eru erlendir ríkisborgarar sem eru í sínu heimalandi þá getum við með ákveðnum hætti óskað eftir yfirheyrslum yfir þeim í sínu heimalandi. Síðan er náttúrulega hægt að krefjast framsals, eftir leiðum sem um það gilda,“ sagði Grímur í samtali við fréttastofu í dag.
„Síðan getum við eins og í öllum öðrum málum boðað menn fyrir dóm sem vitni til dæmis. Þá geta þeir eftir atvikum komið. Það er erfitt við það að eiga ef menn neita að koma og vitni verða ekki framseld milli landa.“
En ef hann mun sæta ákæru í málinu hafið þið leyfi til að láta hann koma aftur til landsins?
„Við getum farið fram á það, bæði við hann að hann komi til landsins og svo getum við krafist þess að hann sé framseldur.“
Grímur segir að lögreglan geti beðið vitni um að koma fyrir dóm en einnig er hægt að taka skýrslur eftir öðrum leiðum, til dæmis símleiðis.
Hann segir jafnframt að miðað við það að annar maðurinn sé látinn laus en hinn sé áfram í haldi þá blasi það við að hlutdeild mannanna í meintu broti sé mismunandi.
„Þessi munur sem þarna kemur fram, þar sem krafist er gæsluvarðhalds yfir einum en hinum ekki, bendir eindregið til þess að aðildin sé mjög mismunandi þó ekki sé hægt að fara nákvæmlega út í það með hvaða hætti það er. Það er ennþá undirliggjandi sama sakarefni,“ segir Grímur.
Þannig að hann er ennþá grunaður um aðild að hvarfi Birnu?
„Já, hann er grunaður um að búa yfir upplýsingum um hvarf hennar.“
Tengdar fréttir

Fara ekki fram á farbann yfir skipverjanum sem verður sleppt
Þrátt fyrir að hvorki sé farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir manninum né farbann, en hann er grænlenskur, hefur hann enn réttarstöðu grunaðs manns í málinu.

Skipverjinn sem látinn var laus farinn úr landi
Maðurinn sem losnaði úr haldi lögreglu í dag eftir að hafa setið í einangrun í tvær vikur, grunaður um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, er farinn úr landi.

„Ef hann væri sakaður um þetta manndráp þá væri hann að sjálfsögðu ekki laus“
Maðurinn sem losnaði úr haldi lögreglu í dag eftir að hafa setið í einangrun í tvær vikur, grunaður um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, kom fyrir dómara í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis og staðfesti þann framburð sem hann hafði áður gefið hjá lögreglu.

Öðrum skipverjanum sleppt úr haldi
Lögreglan mun ekki fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir báðum skipverjunum sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, heldur aðeins öðrum þeirra.

Hinn maðurinn frjáls ferða sinna í dag
Staðfestir framburð sinn hjá dómara.

Mál Birnu Brjánsdóttur vekur heimsathygli
Fjölmiðlar úti í heimi hafa mikinn áhuga á máli Birnu Brjánsdóttur. Kynningarfulltrúi lögreglunnar hefur ekki kynnst jafn viðamiklum áhuga. Oftast er dregið fram að á Ísland sé friðsælt, hér sé enginn her og lögreglan gangi um óvop