Innlent

Skora á Samherja að halda áfram starfsemi á Húsavík

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Stjórn Framsýnar skorar á Samherja að falla frá því að hætta fiskvinnslu á Húsavík.
Stjórn Framsýnar skorar á Samherja að falla frá því að hætta fiskvinnslu á Húsavík. vísir/vilhlem
Stjórn og trúnaðarráð Framsýnar stéttarfélags skorar á Samherja að falla frá því að hætta rekstri Reykfisks á Húsavík, líkt og fyrirhugað er 1. maí næstkomandi. Um sé að ræða mikilvægan vinnustað á Húsavík sem hafi veitt um 20 starfsmönnum vinnu við almenn fiskvinnslustörf.

„Í ljósi þess að kvótastaða Samherja er einstaklega góð ætti ekki að vera erfitt fyrir fyrirtækið að mæta tímabundnum sveiflum í markaðs- og gengismálum því því að halda starfseminni áfram gangandi á Húsavík,“ segir í áskoruninni.

Þá segir að verði niðurstaðan sú að fyrirtækið hætti endanlega starfsemi í maí næstkomandi veðri það verulegur skellur fyrir starfsfólkið og samfélagið á Húsavík enda séu störfin verðmæt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×