Innlent

Fyrsta fangelsi Grænlands skoðað í fréttum Stöðvar 2

Kristján Már Unnarsson skrifar
Fangelsið rís skammt utan við Nuuk og verða allir fangaklefar með útsýni út á fjörðinn.
Fangelsið rís skammt utan við Nuuk og verða allir fangaklefar með útsýni út á fjörðinn. Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Fyrsta lokaða fangelsi Grænlands rís nú í Nuuk.  Í fréttum Stöðvar 2 verða sýndar myndir af framkvæmdum og rætt við fangelsismálastjóra Grænlands, sem heitir Naaja Nathanielsen. Hún verður meðal annars spurð hvort Grænlendingar, sem dæmdir eru á Íslandi, geti fengið að afplána dóminn í nýja fangelsinu. 

Sagt er að engir fangar í heiminum fái betra útsýni því allir fangaklefar verða með glugga út á fjörðinn þar sem við blasa hrikalegir fjallatindar og mögnuð fjarðamynni þar sem skipin sigla út og inn. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá hvernig útsýni fanganna verður.

Naaja Nathanielsen, fangelsismálastjóri Grænlands, í viðtali við fréttamann Stöðvar 2.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×