Margir gætu misst af sérstöku úrræði vegna kaupa á fyrstu fasteign Anton Egilsson og Hersir Aron Ólafsson skrifa 28. desember 2017 22:00
Fjöldi Íslendinga gæti misst af sérstöku úrræði vegna kaupa á fyrstu fasteign ef ekki er sótt um fyrir næsta sunnudag. Um er að ræða heimild til að ráðstafa séreignarsparnaði inn á fasteignalán í allt að tíu ár. Sviðsstjóri hjá ríkisskattstjóra segir fjölmargar umsóknir hafa borist síðustu daga. Með lögum sem tóku gildi 1. júlí síðastliðinn var einstaklingum heimiluð skattfrjáls úttekt séreignasparnaðar vegna kaupa á fyrstu íbúð. Heimildin er þó bundin ýmsum skilyrðum, en þannig þarf umsækjandi að eiga minnst 30 prósent eignarhlut í fasteigninni og ekki mega vera að henni fleiri en tveir eigendur. Þá er það skilyrði að sótt sé um úrræðið ekki síðar en 12 mánuðum frá undirritun kaupsamnings. Lögin tóku við af eldra úrræði frá 2014 þar sem heimilt var að nýta séreignasparnað til ráðstöfunar inn á lán á þriggja ára tímabili. Með nýja úrræðinu er fyrstu kaupendum hins vegar gert kleift að nýta séreignasparnaðinn á samfelldu tíu ára tímabili. Samkvæmt lögunum er þeim sem keyptu sína fyrstu fasteign á tímabilinu frá 1. júlí 2014 til 30. júní 2017 einnig unnt að nýta sér úrræðið. Umsóknarfrestur til þess er hins vegar aðeins út árið 2017, eða eftir þrjá daga. „Það var ákveðið að hafa einhver skil á því hvenær fólk yrði að vera búið að sækja um og það var ákveðið að það yrði um áramótin fyrir þá sem voru búnir að kaupa áður en þessi lög tóku gildi,” sagði Jarþrúður Hanna Jóhannsdóttir, sviðsstjóri atvinnurekstrarsviðs ríkisskattsjóra, í kvöldfréttum Stöðvar 2.Umsóknir hafa hrannast inn Þetta þýðir að þeir sem ekki verða búnir að sækja um úrræðið fyrir næstkomandi sunnudag munu ekki koma til með að geta nýtt sér það. „Þá eru þeir í rauninni úti en þeir geta farið inn í eldra séreignarsparnaðarúrræðið en það gildir einungis til 30. júní 2019, þannig að þá eru þeir ekki inn í þessum 10 ára fasa,” sagði Jarþrúður. Jarþrúður telur líklegt að stór hópur fólks hafi hreinlega ekki áttað sig á tilvist úrræðisins, en gríðarlegur fjöldi umsókna hafi borist skattstjóra síðustu daga. „Við sendum núna 20. desember tölvupóst á ákveðinn hóp, markhóp sem við töldum mjög líklegan. Það voru vægast sagt mjög góð viðbrögð og hafa komið um 1300 umsóknir frá þeim tíma.” En hvernig er þá staða þeirra sem þegar hafa keypt sér fyrstu íbúð – en eru enn ekki farnir að greiða í séreignalífeyrissjóð? „Það er náttúrulega mjög knappur tímarammi til þess en við hvetjum alla til að setja inn umsókn í gegnum skattur.is og ganga svo strax frá því að fara að greiða í sjóð því að þá myndu greiðslur gilda frá því í janúar,” sagði Jarþrúður að lokum.
Mest lesið Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Innlent Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Innlent „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Innlent Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Innlent Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Innlent „Nú hættir þú Sigurður!“ Innlent Kastaði eggjum í bíl Innlent Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Innlent Þurrt og léttskýjað á sumardaginn fyrsta Innlent Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Innlent Fleiri fréttir Leigubílstjóri og vinur hans dæmdir fyrir nauðgun Kastaði eggjum í bíl Þurrt og léttskýjað á sumardaginn fyrsta „Það er leitt að sjá á eftir góðu baráttufólki“ Rannsóknaraðgerð lokið en málið enn til rannsóknar Þrír menn til rannsóknar vegna tveggja hópnauðgana Hafa vísað hundrað leigubílstjórum á brott frá flugstöðinni vegna brota á reglum Gríðarlegir fjármunir sveitarfélaga í öryggisvistanir Sérsveitin aðstoðar lögregluna á Suðurlandi Milljarður í kostnað vegna öryggisvistunar og húðflúr í beinni Eva Georgs ráðin dagskrárstjóri sjónvarps hjá RÚV Mótmæla hagræðingum og segja þær bitna á konum Skóflustunga að padelveislu í Kópavogi Sólveig Anna segir skilið við Sósíalista Ríkissaksóknari staðfestir niðurfellingu í stórri slysasleppingu Tíufréttir heyra sögunni til Stuðningur við Úkraínu og Palestínu fer dvínandi Neitar að hafa orðið föður sínum að bana Óljóst hvað Gad Saad er sakaður um í mótmælapóstum Línan umdeilda fær enn eitt græna ljósið Lætur könnun um væntingar ekki á sig fá Kalt veður bjargaði Andrésar andarleikunum fyrir horn Óeðlileg staða á íslenskum eignamarkaði Barnaníðingur situr inni þar til hann verður sendur til Litáen Meirihluti hefur litlar væntingar til borgarstjórnarmeirihlutans „Nú hættir þú Sigurður!“ Beittu neyðarstöðvun til að forðast árekstur við Herjólf Pakki skemmdist og „óafhending“ varð Eldur Smári segir að sér sé markvisst haldið í myrkrinu Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Sjá meira