Innlent

Sló mann í höfuðið með rörbút og annan með hamri

Anton Egilsson skrifar
Maðurinn hefur verið kærður fyrir alvarlega líkamsárás.
Maðurinn hefur verið kærður fyrir alvarlega líkamsárás. Vísir/GVA
Hæstiréttur staðfesti í gær þriggja vikna gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni sem grunaður er um að hafa hafa slegið mann í höfuðið með rörbút og annan með hamri. Þá liggur hann einnig undir grun um aðra líkamsárás, þrjú þjófnaðarbrot og tug umferðalagabrota.  

Í greinargerð Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að þann 20. desember hafi maður óskað eftir aðstoð lögreglu í kjölfar þess að hann hafi orðið fyrir líkamsárás á Laugavegi. Þegar lögreglu bar að garði hafi hinn slasaði setið út í horni og verið búinn að vefja viskastykki yfir höfuð sitt. Aðspurður um hvað hefði gerst sagði hann að meintur árásarmaður hefði lamið sig með hamri.

Hinn slasaði var í kjölfarið fluttur með sjúkrabifreið á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi en meintur árásarmaður var handtekinn á vettvangi og síðar kærður fyrir alvarlega líkamsárás. Neitaði hann alfarið sök í skýrslutöku hjá lögreglu.

Þurfti að sauma sjö spor í vinstra eyra

Þriðjudaginn 12. desember síðastlðinn var lögreglu tilkynnt um líkamsárás að Laugavegi og var þá sami maður meintur árásarmaður. Sá sem varð fyrir árásinni kveður manninn hafa slegið sig þungu höggi með röri en sauma þurfti sjö spor í vinstra eyra hans í kjölfarið. Framburður þriggja vitna sem styðja framburð hins slasaða liggja fyrir.

Maðurinn sætir rannsókn lögreglu vegna ýmissa annarra brota en hann er einnig grunaður um þrjú þjófnaðarbrot og aðra líkamsáras en hann er talinn hafa ráðist að tveimur mönnum á Ingólfstorgi í október síðastliðnum og slegið annan þeirra í andlitið. Auk framagreinds er kærði með tíu mál á hendur sér er varða meint umferðarlagabrot á tímabilinu 8. apríl  2017 til 11. nóvember 2017 en í málunum er hann grunaður um að hafa ekið bifreið án ökuréttar og vera óhæfur um að stjórna henni örugglega vegna áhrifa áfengis og ávana- og fíkniefna.

Lesa má dóm Hæstaréttar í heild sinni hér




Fleiri fréttir

Sjá meira


×