Sjón og Jón eru á listum veðbanka, báðir samanlagt með stuðulinn 21, sem þýðir einfaldlega að ef einhver vill veðja þúsund krónum á að þeir hreppi hnossið, þá fær sá 21 þúsund krónur til baka. En, tapar þúsund kallinum komi það ekki á daginn.
Heimsþekktir höfundar neðar á lista
Þeir höfundar sem þykja líklegastir samkvæmt veðbönkum eru Ngũgĩ wa Thiong'o frá Kenía, hann er efstur á blaði. Næstur kemur japanski rithöfundurinn Haruki Murakami, sem oftlega hefur verið nefndur sem kandítat þegar Nóbelsverðlaunin eru annars vegar. Og þriðja efst á lista er svo Margret Atwood, kandadíski rithöfundurinn, þekktur femínisti og margverðlaunuð fyrir skrif sín.

Þetta hefur vakið athygli, meðal annars hefur Sænska sjónvarpið fjallað um þetta og ræddi við Jón Kalmann. Jón er hress og segist ætla, verði hann fyrir valinu, að drekka viskíflösku með vinum sínum. Til að fagna. Hann segir þetta heiður en ljóst er að hann vill ekki gera of mikið úr þessu. Og Jón Kalmann segist ekki hafa heyrt neitt frá akademíunni.
Báðir vakið athygli á erlendri grundu
Vísir reyndi að komast til botns í því, með fullri virðingu, hvað ræður því að þeir Jón og Sjón en ekki einhverjir aðrir, til að mynda Guðbergur Bergsson, eru ekki nefndir til sögunnar. Og hvort komið sé að Íslandi í einhverjum pólitískum skilningi sem undirliggjandi getur verið? Eru menn misverðlaunalegir á svipinn?
Egill Örn Jóhannsson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, segist ekki þekkja pólitíkina í kringum Nóbelinn og minnir á að hún hafi vitaskuld verið umdeild frá upphafi. Egill Örn minnir á að Dylan hafi fengið verðlaunin síðast og kom það mörgum í opna skjöldu.

Veðjað á Jón og Sjón
Vegir nefndarinnar eru af þeim sem Vísir ræddi við og þekkja vel til, órannsakanlegir. Stundum fer þetta eftir því hvort einhver nefndarmaður er nógu ákveðinn stuðningsmaður einhvers og svo framvegis. Erfitt er að setja putta á hvað ræður. Komið að Íslandi? Því ekki það, segir einn álitsgjafa Vísis og bendir á að ekki nokkur maður hafi leyft sér að spá því að Elfriede Jelinek fengi Nóbel.
Það liggur því fyrir að talsverð heppni verður að vera með í spilinu ef menn ætla sér að veðja á hvað verður á morgun. Blaðamaður Vísis ætlar þó að henda sitt hvorum þúsund krónunum á Jón og svo Sjón. Og til að setja aukna spennu í þann leik fer þriðji þúsund kallinn á ungverjann László Krasznahorkai, en hann er með stuðulinn 30 á Betsson.