Tekjur Íslendinga: Valur Ragnarsson tekjuhæsti forstjórinn Samúel Karl Ólason skrifar 30. júní 2017 07:54 Valur Ragnarsson, Róbert Wessman, Tómas Már Sigurðsson og Grímur Karl Sæmundsen. Vísir
Valur Ragnarsson, forstjóri Medis, er tekjuhæsti forstjóri fyrirtækis á Íslandi. Þetta kemur fram í Tekjublaði Frjálsar verslunar sem gefið var út í morgun. Miðað við könnun blaðsins var Valur með 24 milljónir og 561 þúsund krónur á mánuði. Í öðru sæti er Vilhelm Róbert Wessman, forstjóri Alvogen, með 19 milljónir. Þar á eftir kemur Grímur Karl Sæmundsson, forstjóri Bláa Lónsins, með 11,8 milljónir. Í því fjórða er Tómas Már Sigurðsson, forstjóri hjá Alcoa með 8,5 milljónir. Fjölnir Torfason, gistihúsaeigandi, Hala í Suðursveit, er í fimmta sæti með rétt tæpar átta milljónir á mánuði. Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marels, er númer sex með 7,67 milljónir króna og Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskar erfðagreiningar, er í sjöunda sæti með 7,56 milljónir króna. Finnur Árnason, forstjóri Haga er í því áttunda með 6,12 milljónir króna á mánuði og Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipa, er næstur með rétt rúmar sex milljónir. Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan, er efsta konan á listanum yfir tekjuhæstu forstjóra fyrirtækja. Hún er í tíunda sæti með 5,5 milljónir króna á mánuði. Vert er að taka fram að könnun Frjálsar verslunar byggir á útsvari eins og það birtist í álagningarskrám. Í einhverjum tilvikum kann að vera að skattstjóri hafi áætlað tekjur. Þá þurfa tölurnar ekki að endurspegla föst laun í fyrra þar sem allar tekjur ákvarða útsvar. Þær gætu verið fyrir setu í nefndum, önnur aukastörf og vegna kaupréttarsamninga. Jafnvel hafa margir tekið út séreignarsparnað.
Tekjur Mest lesið Ósáttur með sætin og fær milljón endurgreidda Neytendur Ferðatryggingar og val á kreditkorti Viðskipti Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Viðskipti innlent Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Viðskipti innlent Reitir hrista upp í skipuritinu Viðskipti innlent Nýr 40/40 listi: „Spenntur að sjá hvað þetta fólk gerir í framtíðinni“ Atvinnulíf Helmingaði kostnaðinn við matarinnkaup Neytendur Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Viðskipti innlent Í áfalli yfir dýrari dekkjum og Hlöllabát Neytendur Gefa út afkomuspá eftir allt saman Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Gjaldþrot Jötunn véla upp á 1,7 milljarða Reitir hrista upp í skipuritinu Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll Gefa út afkomuspá eftir allt saman 96 sagt upp í hópuppsögnum í júní Tekur við fjármálunum hjá Securitas Selja fyrsta bjórinn ekki fyrr en í ágúst Karen Ýr ráðin gæðastjóri Biðin eftir vaxtalækkun gæti lengst enn frekar Minna nú á skoðun ökutækja á Ísland.is Alvotech reiknar með tíföldum tekjum Útflutningsverðmæti eldislaxins meiri en loðnunnar Opna baðstað í Kerlingarfjöllum um helgina Svekkjandi uppgjör og aðstoðarforstjórinn látinn róa Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Sjá meira