Lífið

Lætur gott af sér leiða á sjötíu ára afmælinu

Guðný Hrönn skrifar
Sveinn Rúnar Hauksson heldur stórtónleika í kvöld, á afmælisdaginn sinn.
Sveinn Rúnar Hauksson heldur stórtónleika í kvöld, á afmælisdaginn sinn. vísir/gva
„Ég fékk þessa hugmynd, að halda upp á afmælisdaginn minn með því að gleyma afmælinu mínu hreinlega og halda styrktartónleika fyrir Palestínu. Ég á svo góða að, sem er þetta yndislega listafólk, sem var allt meira en reiðubúið til að leggja þessu verkefni lið,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson um styrktartónleikana sem hann stendur fyrir í dag, á afmælisdegi sínum. Tónleikarnir eru í Háskólabíói klukkan átta og fram koma listamenn á borð við Bubba Morthens, KK, Bjartmar Guðlaugsson, Sigríði Thorlacius, Högna Egilsson, Ellen Kristjáns, Eyþór Gunnarsson, Ragnheiði Gröndal og Guðmund Pétursson.

„Mér finnst þetta vera rjóminn af okkar söngvaskáldum. Þetta er mjög spennandi, ekki síst fyrir það að allt andvirði seldra miðum fer óskipt til samtaka á Gasa sem heita AISHA,“ segir Sveinn sem er fyrrverandi formaður Félagsins Ísland-Palestína.

Ísland-Palestína hefur stutt AISHA-samtökin frá árinu 2010 en samtökin deila út styrkjum til frumkvöðlaverkefna sem miða að vald­eflingu kvenna sem orðið hafa fyrir ofbeldi en eru jafnframt höfuð sinna fjölskyldna eftir fráfall eða sjúkdóma eiginmanns. AISHA eru félagasamtök til verndar konum og börnum á Gasa, eins konar sambland af Stígamótum og Kvennaráðgjöfinni ásamt starfsþjálfun.

„Þetta er alveg frábært kvennahús sem hefur hjálpað mörgum konum og fjölskyldum sem hafa orðið fyrir ofbeldi.“

Sveinn er mikið afmælisbarn og heldur ávallt veislu á afmælisdaginn. „Já, ég er óskaplega mikið afmælisbarn. Sumum finnst þetta broslegt, því ég býð alltaf mörgum í afmælið mitt á hverju einasta ári, og nú býð ég í eitt Háskólabíó,“ segir hann og hlær.

„Ég læt alltaf eins og hvert afmæli gæti verið það síðasta. Þannig að það er alltaf mjög mikið fjör og mikið sungið og spilað.“

Sveinn segir söluna á tónleikana fara ágætlega af stað. „Ég treysti því þó að aðalsalan verði í dag. Þetta verður svaka prógramm og miðinn kostar 3.000 krónur. Þeir sem vilja styrkja frekar geta lagt inn á söfnunarreikning. Eins verður tekið við frjálsum framlögum á staðnum,“ segir Sveinn.

„Ég er óskaplega þakklátur þessu fólki öllu, sem kemur þarna fram og hefur verið að undirbúa þetta með mér. Það krefst mikillar undirbúningsvinnu að setja upp svona tónleika og félagarnir Guðfinnur Sveinsson og Unnsteinn Manuel Stefánsson, ásamt Björk Guðmundsdóttur, sem halda tónleikana með mér, hafa haft mjög mikið að gera og ég hef svona fengið að fylgja með.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×