Menning

Allt verður að fara af lagernum

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Margeir flytur af landi brott og þarf að losa lagerinn. Allt á að fara.
Margeir flytur af landi brott og þarf að losa lagerinn. Allt á að fara. Vísir/Anton Brink
Listamaðurinn Margeir Dire heldur uppboð á verkum sínum, allt frá litlum teikningum upp í mannhæðarhá olíumálverk, í þartilgerðum Facebook-hópi, Uppboð Margeir Dire, um þessar mundir. Margeir flytur til Berlínar í lok mánaðar og ætlar að byrja á núlli þar og því verður allt að fara af lagernum. Þarna má fá myndlist langt undir söluverði enda hefjast öll uppboð á hálfvirði verkanna.

Nokkur verkanna sem verða boðin upp. Vísir/Anton Brink
„Ég set inn suma daga bara eitt stórt verk, en þegar það eru minni verk þá set ég kannski inn 2-3 verk. Planið er svo að halda lokahóf sem verður í raun sýning með uppboði. Þetta er allt í allt einhver 50 verk sem ég er að bjóða upp.

Elsta verkið hérna er frá 2004 og svo er þetta allt upp í verk sem ég gerði fyrir mánuði. Þetta er eitthvað sem hefur safnast upp, sum verkin hafa í raun bara farið beint inn í geymslu og ég hef aldrei reynt að koma þeim út. Þetta eru aðallega gullmolar – sum hver verk sem ég ætlaði að geyma og eiga en það er ekkert vit í því að reyna að safna sjálfum sér,“ segir Margeir. 

Uppboðið má nálgast hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.