Slaven Bilic harður: Dimitri Payet vill ekki spila og fær ekki að æfa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. janúar 2017 12:30 Dimitri Payet og Slaven Bilic. Vísir/Samsettar myndir frá Getty
Dimitri Payet er án efa besti leikmaður West Ham en franski landsliðsmaðurinn hefur verið orðaður við önnur „stærri“ félög að undanförnu og það fer ekki vel í stjórann sem hefur sett hann í frystikistuna. Sögusagnirnar eru eitthvað að trufla miðjumanninn og knattspyrnustjórinn Slaven Bilic gaf það hreinlega út í viðtalið við BBC í dag að hann ætlaði ekki að nota Payet á næstunni. „Við höfum sagt að við viljum ekki selja okkar bestu leikmenn en Payet vill ekki spila fyrir okkur. Við ætlum samt ekki að selja hann,“ sagði Slaven Bilic. Dimitri Payet kom til West Ham frá Marseille í júní 2015 og borgaði enska félagið 10.7 milljónir punda fyrir hann. Eftir að hafa slegið í gegn hjá West Ham þá skrifaði Dimitri Payet undir nýjan samning í febrúar 2016 en sá samningur heldur honum hjá West Ham til ársins 2021. „Ég býst við því að hann kom til baka og sýni sömu hollustu og skuldbindingu við félagið og það hefur sýnt honum,“ sagði Slaven Bilic. „Það kemur aldrei til greina að selja hann. Þetta snýst ekki um peninga heldur um það að við viljum halda okkar bestu leikmönnum. Slaven Bilic er viss um það að önnur félög hafa verið að pota í Payet og það sé að trufla hann. „Þar til að hann breytir um hugarfar þá er hann út úr liðinu og fær ekki að æfa með okkur,“ sagði Bilic. West Ham er í 13. sætinu í ensku úrvalsdeildinni og sjö stigum fyrir ofan fallsæti. Næsti leikur er á móti Crystal Palace á heimavelli á laugardaginn kemur.
Enski boltinn Mest lesið Tárvot Ásta sátt í hjarta sínu með ákvörðunina Íslenski boltinn UEFA hefur rannsókn vegna kvartana Tel Aviv Fótbolti Njarðvík semur við eina unga og efnilega Körfubolti Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Enski boltinn Varði mark botnliðsins en bar samt af Íslenski boltinn Daníel Ingi framlengir hjá Nordsjælland Fótbolti Gylfi Þór ekki í hóp Vals í gær en á landsliðsæfingu í dag Íslenski boltinn Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Handbolti Dásamar Albert og segir hann ráða hver taki vítin Fótbolti Þekkti þjálfarann og fékk því himnasendingu frá Reyðarfirði Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ „Þá er ég mjög heimskur þjálfari“ Samherji Stefáns Teits í átta leikja bann fyrir að bíta mótherja Trúir ekki skýringum og tippar á rifrildi við Rashford Eigandi Nottingham Forest ákærður af enska knattspyrnusambandinu Valinn í landsliðið í fyrsta sinn í sjö ár Holdafarsummæli Guardiola sem myllusteinn um háls Phillips Henry hélt að Saka yrði ekki það góður „Hann er klárlega magnaður þjálfari“ Leikmaður City handtekinn fyrir að stela síma Sjá meira