Haustspá Siggu Kling - Tvíburinn: Þú ert að bíða eftir tækifæri 1. september 2017 09:00
Elsku Tvíburinn minn. Þú ert svo klár og ástríðufullur og getur verið með mörg verkefni á sama tíma. Margir færu í „burnout“ eða kulnun við svoleiðis aðstæður. En þú býrð yfir krafti á við bestu þotur WOWair, mundu þó að það sem knýr þoturnar áfram er einfaldlega eldsneyti. Það sem þú þarft að skoða í þessu samhengi er að vera ekki í hrútleiðinlegri vinnu eða skóla sem hefur á þér fastatök. Það er nefnilega frelsið sem skapar þessa glimrandi skemmtilegu manneskju sem þú ert. Þú þarft að skilja þetta því annars nær þunglyndisdraugurinn á þér tökum. Plánetan Mars stjórnar töluvert orku þinni á næstunni. Hún gefur þér kraft sem þú vissir ekki þú hefðir til þess að taka ákvarðanir sem eru erfiðar og beina þér inn á hressari brautir. Ef ekkert er erfitt í kringum þig er í raun ekkert að gerast og það lífgar ekki anda þinn nokkurn skapaðan hlut. Svo vertu bjartsýnn sem þýðir einfaldlega sjáðu það bjarta í lífinu. Ástríða einkennir bjartsýnan Tvíbura og þá líður þér eins og drottningu eða kóngi á fallegu taflborði og finnur að þú hefur ekkert að óttast þótt þú takir áhættu í ástamálum. En þið sem eruð í sambandi skuluð byggja upp skemmtilegra ástalíf, dekra við makann og hrósa honum, halda spennunni gangandi því þar ertu sannarlega snillingur. Þú hefur engan áhuga á að stjórna þeim sem þú ert ástfanginn af eða hafa undirgefinn maka, þá verðurðu bara leiður því þú elskar spennu og þú ræður sjálfur hvort þú skapar spennandi hluti í kringum þig, þitt er valið! Þú ert að bíða eftir tækifæri til þess að láta á það reyna hvað þú getur. En það fer þér samt ekki vel að bíða því að þolinmæði er ekki þín helsta dyggð. En þetta er ofureinfalt, ef þig langar í bein þá þarftu að fara út og grafa það upp. Þú átt eftir að fá val milli tveggja kosta sem tengjast vinnu, skóla eða heimili. Þú verður að vera snöggur að taka ákvörðun þegar þetta býðst. Og farðu eftir eigin innsæi en ekki áliti annarra. Setningin sem ég sendi þér er: Líttu upp í ljós (Páll Óskar) Frægir Tvíburar: Ragnar Sigurðsson landsliðsmaður, Örn Árnason leikari, Óli Geir Jónsson plötusnúður, Bjarni töframaður, Hrund Þórsdóttir fréttakona, Össur Skarphéðinsson húmoristi, Johnny Depp leikari, Páll Magnússon fjölmiðlamaður, Kjartan Atli Kjartansson lífsspekúlant, Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, Andri Freyr útvarpsmaður og Lýðveldið Ísland, Donald Trump, Þórarinn Þórarinsson blaðamaður, Bjartmar Guðlaugsson, söngvari og snillingur.
Stjörnuspá Siggu Kling Mest lesið Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Lífið Bannað að ræða fótbolta og heimilisfjármálin á stefnumótum Makamál Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“ Matur Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Íslendingar tilnefndir til Emmy-verðlauna Bíó og sjónvarp Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Fleiri fréttir Færeyjaferð endaði á Hotel Cabin: „Búnar að hlæja viðstöðulaust síðan við fórum upp á völl“ Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Ljúffengur sumarréttur með burrata osti Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Falska söngkonan á leið í meðferð Myndaveisla: Héldu upp á tíu ára afmælið í Guðmundarlundi Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Tónleikaferðalagið í vaskinn eftir ummæli um Trump Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Fékk hjálp úr óvæntri átt í miðjum skilnaði Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lengi lifir í gömlum glæðum Rúrik og Pétur Jóhann þeir frægustu sem hún hefur hitt Hrikalega spennandi grillkeppni á Kótilettunni Logi Bergmann var tekinn New York Times lofar Snertingu Með lykilinn að því hvernig á að gera eftirhermu af Íslending Stjörnum prýdd dómnefnd í Ungfrú Ísland Sumarlegur fiskréttur á pönnu Stjörnulífið: Heimir Hallgríms ástfanginn í Suður Frakklandi „Hann er fullkominn eins og hann er“ „Ég var dómharður og ömurlegur gæi“ „Ég var með beinflísar stingandi inn í mænuna mína“ Richard Simmons látinn Shannen Doherty látin Dægrastytting í heimsfaraldri uppskar óvænta frægð Veiðiþættirnir Allt í keng: Nýi skólinn hittir gamla skólann Sjá meira