Hulin útivistarperla í fögrum skógarsal í jaðri borgarinnar Kristján Már Unnarsson skrifar 11. júlí 2017 21:00
Fjögur skógræktarfélög er búin að skapa útivistarperlu í sunnanverðum Hvalfirði í innan við klukkustundar akstursfæri frá Reykjavík. Fjallað var um svæðið í fréttum Stöðvar 2 og í þættinum Ísland í sumar þar sem bæjarfulltrúinn fyrrverandi úr Kópavogi, Bragi Michaelsson, fylgdi áhorfendum um jörðina Fossá, sem hann kallar perlu og paradís. Fossinn og réttin við þjóðveginn eru það sem vegfarendur kannast helst við en meðan hringvegurinn lá enn um Hvalfjörðinn tóku menn vart eftir litlu trjáplöntunum sem voru að byrja að gægjast upp úr jörðinni. Þær eru nú orðnar að stórum skógi með göngustígum og fögrum skógarlundum. Bragi Michaelsson sýnir hæstu trén, sem nálgast tíu metra, og stækka ört.Stöð 2/Sigurjón Ólason.Bragi Michaelsson hefur lengi verið í forystusveit Skógræktarfélags Kópavogs, sem á helming Fossárjarðarinnar á móti skógræktarfélögum Mosfellinga, Kjalnesinga og Kjósverja. Síðasti bóndinn á Fossá, Björgvin Guðbrandsson, vildi að jörðin yrði klædd gróðri og ákvað því að selja hana skógaræktarfélögunum, sem hófu gróðursetningu árið 1973. Árangurinn á þessum 44 árum sjá menn með því að ganga um skógarstígana sem bjóða upp á skemmtilega hringleið þar sem hæstu trén nálgast tíu metra. Skjólsæll Fossárdalurinn er orðinn skógarsalur sem myndar áhugavert útivistarsvæði en dýrðina má sjá hér í þættinum Ísland í sumar.Horft inn Fossárdal, sem er að verða samfelldur skógarsalur.Stöð 2/Sigurjón Ólason.
Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Fleiri fréttir „Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála Heimila íshellaferðir á ný Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám JL húsið verður búsetuúrræði fyrir flóttafólk Eyvindur settur landsréttardómari Nýtt björgunarskip komið til landsins Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Færri ferðamenn þýðir lægri dagpeningar ríkisstarfsmanna Ökumaður bakkaði á barn á Ísafirði Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Fundur sem ræður úrslitum hafinn Neituðu að hafa smyglað tuttugu milljónum sígaretta Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Mjúkt vald Íslands út um allan heim Tvímenningar taldir tengjast Elko-málinu Tekist á um menntamál og brúarsmíði Auður mjög tímabundið settur forstjóri Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Kennarasambandið hlynnt nýjum matsferli Ekki í lífshættu eftir stunguárás í Austurbænum Hvernig þingmenn yrðu Arnar Þór, Jón Gnarr og Þórður Snær? Helga Mogensen látin Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Bein útsending: Menntaþing 2024 – Aðgerðir í menntaumbótum og viðbrögð við PISA Stór skjálfti í Goðabungu Boðað til fundar ráðuneyta og nefnda Alþingis um Ölfusárbrú í dag Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Sjá meira