Skoðun

Aðgreining og mismunun, fyrir hverja og af hverju?

Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Fyrir nokkrum dögum kom frétt á Vísi um að litlu hefði mátt muna, að ung stúlka í hjólastól hefði nærri orðið strandaglópur á Keflavíkurflugvelli. Af góðsemi sinni bjargaði bílstjóri Kynnisferða henni frá því að þurfa að vera nóttina á flugvellinum.

Talað var við Kristján Daníelsson framkvæmdastjóra Kynnisferða og Reykjavík Excursions, sem setti ábyrgðina á fatlað fólk, að það eigi að láta vita af sér ef því detti í hug að ferðast til landsins.

Í sömu frétt er talað við Guðríði Björg Guðfinnsdóttur hjá Gray line rúturfyrirtækinu sem sagði að hægt væri að aðstoða fatlaða einstaklinga svo lengi sem hægt væri að leggja hjólastól þeirra saman og einstaklingurinn staðið í fæturna, annars er ekki tekið við fötluðu fólki nema í sér bíl!

 

Hvað á að kalla þetta, þröngsýnis, forræðishyggju og skort á samkennd?

Ætli það ágæta fólk sem stýrir almenningssamgöngum, strætó, rútum o.fl. vildi sjálft þurfa að standa í allskonar sértækum aðgerðum til að komast leiðar sinnar.

Það er tími til komin að þið sem rekið almenningssamgöngur á Íslandi opnið augun fyrir því, að fatlað fólk hefur rétt til að fara um í samfélaginu á sama hátt og annað fólk.

Ykkar er að koma með lausnina en ekki okkar að endalaust hringja og láta vita af því að við séum á ferðinni og  panta sértæka bíla, svo hægt sé að aðgreina okkur enn frekar frá samfélaginu.

Það væri gott að þið sem sjáið um samgöngur hér á landi hættið að ýta ábyrgðinni á fatlað fólk sem einfaldlega gerir ráð fyrir að geta ferðast til og frá flugvelli á Íslandi, svona eins og sennilega víðast hvar í siðmenntuðum löndum, án þess að þurfa að tilkynna sig sérstaklega og fá þar af leiðandi sér ferð í sér bíl. Sérdeilis mikið rugl hvað íslendingar eiga erfitt með að mismuna ekki og aðgreina ekki.

Höfundur er varaformaður Sjálfsbjargar.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×