Bottas: Nú ætla ég að vinna á morgun Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 25. nóvember 2017 21:00 Þrír hröðustu frá vinstri: Sebastian Vettel, Valtteri Bottas og Lewis Hamilton. Vísir/Getty
Valtteri Bottas náði sínum öðrum ráspól í röð í dag. Hann var óstöðvandi á Mercedes bílnum. Hver sagði hvað eftir tímatökuna? „Auðvitað hjálpar að hafa fjölskylduna hér tila ð styðja mig, konan mín er hér þessa helgi. Ég er afar ánægður með þetta. Bíllinn var mjög góður. Það er bara markmiðið núna að snúa ráspólnum upp í sigur á morgun. Ég var afar svekktur með að ná ekki að vinna í Brasilíu í síðustu keppni. Ég ætla ekki að klúðra því aftur,“ sagði Bottas. „Valtteri átti ótrúlegan tímatöku, ég vil byrja á að óska honum til hamingju. Þetta var skemmtilegt, ég virðist þó vera að missa hraða í tímatökunum undanfarið. Það eru svona litlir hlutir hér og þar sem kostuðu mig ráspól,“ sagði Lewis Hamilton sem varð annar á Mercedes. „Þetta var ágætis tímataka, auðvitað er svekkjandi að komast ekki nær Mercedes en þetta. Við ættum að vera betri hér á morgun í keppninni,“ sagði Sebastian Vettel sem varð þriðji á Ferrari. „Við þurftum aðeins að vinna í bílnum í tímatökunni. Við vorum bara að ræða málin og komast að niðurstöðu. Það er gott að sjá að það tókst. Ég held að það sé klárt tækifæri á verðlaunasæti hér á morgun. Það er svo spurning hvernig keppnin þróast,“ sagði Daniel Ricciardo sem varð fjórði á Red Bull.Felipe Massa var í sinni síðustu tímatöku í Formúlu 1 í dag.Vísir/Getty„Tímatakan var erfið, ég var í vandræðum með bílinn á öllum æfingum og í tímtaökunni. Það voru að koma upp mismunandi vandamál. Við þurfum að komast til botns í þessu sem fyrst til að reyna að eiga möguleika í keppninni,“ sagði Max Verstappen sem varð sjötti á Red Bull. „Ég hefði ekki getað gert meira í dag. Ég skil ekki alveg hvernig ég komst í þriðju lotuna Ég var gjörsamlega á mörkunum. Það er svoleiðis sem ég vildi alltaf hætta í Formúlu 1, með höfuðið hátt og í baráttunni. Ég vil fyrst og fremst hafa gaman á morgun. Ég mun ekki spara neitt, ég hef engu að tapa,“ sagði Felipe Masssa sem varð tíundi á Williams í sinni síðustu tímatöku í Formúlu 1. „Ég hafði hraðan til að verða sjöundi. Ég er ekki kátur, sem betur fer er þetta bara tímatakan. Kannski get ég náð góðri ræsingu á morgun og bætt stöðu mína. Ég mun ekkert básúna hér af hverju ég er ósáttur, en það hafði ekkert með bílinn að gera,“ sagði Esteban Ocon sem varð níundi á Force India bílnum. „Ég er nokkuð sáttur með þetta. Ég lenti í smá vandræðum með Nico Hulkenberg á einum tímapunkti. Það var svo ,“ sagði Sergio Perez sem varð áttundi á Force India.
Formúla Tengdar fréttir Vettel og Hamilton fljótastir á föstudegi í Abú Dabí Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Abú Dabí kappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer um helgina. Lewis Hamilton á Mercedes, sem er orðinn heimsmeistari í ár var fljótastur á seinni æfingu dagsins. 24. nóvember 2017 19:00 Valtteri Bottas á ráspól í Abú Dabí Valtteri Bottas á Mercedes náði í síðasta ráspól tímabilsins í Formúlu 1 í Abú Dabí í dag. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji. 25. nóvember 2017 13:44 Felipe Massa væntir tilfinningaríkrar keppni í Abú Dabí Felipe Massa, ökumaður Williams liðsins býst við að keppnin í Abú Dabí um komandi helgi verði tilfinningaþrungin. Keppnin verður bæði síðasta keppni tímabilsins og síðasta keppni brasilíska ökumannsins í Formúlu 1. 22. nóvember 2017 20:00 Mest lesið Ein stærstu og óvæntustu skipti sögunnar Körfubolti „Íslensku konurnar sem breyttu CrossFit heiminum að eilífu“ Sport Snorri Steinn heldur með Degi: „Ég vona innilega að hann vinni“ Handbolti Neitaði að heilsa skákkonunni en bætti fyrir það með stæl Sport Snorri Steinn um Gunna Magg málið: „Það er kjánaskapur að halda því fram“ Handbolti Grein Morgunblaðsins til skammar Sport United sækir annað ungstirni frá Arsenal Fótbolti Rashford við það að ganga í raðir Aston Villa Fótbolti „Vertu auðmjúkur“ leikurinn, taka tvö Enski boltinn FH fær markahæsta Selfyssing sögunnar Handbolti Fleiri fréttir Hamilton klessti Ferrari-inn á fyrsta degi Arftaki Hamiltons fékk bílprófið sex vikum fyrir fyrstu keppni tímabilsins Mun harðari refsingar á nýju formúlu 1 tímabili Hamilton gæti ekki verið spenntari fyrir komandi tímabili Sjá meira
Vettel og Hamilton fljótastir á föstudegi í Abú Dabí Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir Abú Dabí kappaksturinn í Formúlu 1 sem fram fer um helgina. Lewis Hamilton á Mercedes, sem er orðinn heimsmeistari í ár var fljótastur á seinni æfingu dagsins. 24. nóvember 2017 19:00
Valtteri Bottas á ráspól í Abú Dabí Valtteri Bottas á Mercedes náði í síðasta ráspól tímabilsins í Formúlu 1 í Abú Dabí í dag. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari varð þriðji. 25. nóvember 2017 13:44
Felipe Massa væntir tilfinningaríkrar keppni í Abú Dabí Felipe Massa, ökumaður Williams liðsins býst við að keppnin í Abú Dabí um komandi helgi verði tilfinningaþrungin. Keppnin verður bæði síðasta keppni tímabilsins og síðasta keppni brasilíska ökumannsins í Formúlu 1. 22. nóvember 2017 20:00