Tveir menn eru í haldi lögreglu eftir að kona fannst látin í íbúð á Hagamel í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Tilkynning barst lögreglu um tíuleytið í kvöld og fóru sérsveitarmenn, lögreglumenn og sjúkrabíll á svæðið eins og Vísir hafði greint frá fyrr í kvöld.
Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, staðfestir við Vísi að grunur sé um líkamsárás sem leiddi til dauða konunnar. Tveir eru í haldi lögreglu og er annar þeirra undir meiri grun en hinn um aðkomu að dauða hennar.
Lögregla hefur verið á Hagamelnum í kvöld að taka skýrslur af íbúum í húsinu og rannsóknardeild lögreglu er að skoða vettvanginn. Framundan eru yfirheyrslur yfir mönnunum tveimur.
Manndráp á Melunum

Tengdar fréttir

Umfangsmiklar aðgerðir lögreglu í Vesturbænum: Einn fluttur alvarlega slasaður á sjúkrahús
Einn var fluttur alvarlega slasaður í lögreglufylgd á sjúkrahús í kvöld eftir lögregluaðgerðir í Vesturbæ Reykjavíkur.