Innlent

Skagamenn tóku ríkan þátt í hátíðarhöldum Írskra daga

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Ella María Gunnarsdóttir, forstöðumaður menningar-og safnamála, segist ekki muna eftir viðlíka fjölda í Garðalundi. Leikhópurinn Lotta sýndi Litla andarungann.
Ella María Gunnarsdóttir, forstöðumaður menningar-og safnamála, segist ekki muna eftir viðlíka fjölda í Garðalundi. Leikhópurinn Lotta sýndi Litla andarungann. Ella María Gunnarsdóttir
„Það hefur gengið lygilega vel,“ segir Ella María Gunnarsdóttir, forstöðumaður menningar-og safnamála hjá Akraneskaupstað um nýafstaðna bæjarhátíð. Írskir dagar voru haldnir í átjánda skiptið í ár og gekk hátíðin vonum framar.

Ella María segir talsverðan fjölda hafa verið á hátíðinni en segir erfitt að áætla nákvæma tölu því mikið hafi verið um að vera á mörgum svæðum samtímis. „Það var fullt alls staðar,“ segir Ella.



Aðspurð hvort mikið hafi verið um aðkomumenn svarar Ella María játandi. Hún segir einnig að brottfluttir Skagamenn hafi fjölmennt. Þeir hafi margir komið aftur á heimaslóðirnar ýmist með stórfjölskylduna eða vini úr háskólanum með í för.

Grímar Teitsson og Petrún Berglind Sveinsdóttir hlutu flugmiða fyrir tvo til Írlands fyrir best skreytta húsið á Írskum dögum.Ella María Gunnarsdóttir
Blaðamaður Vísis tók eftir því að allur bærinn var skreyttur með írsku fánalitunum. Tóku bæjarbúar svona mikinn þátt í hátíðarhöldunum? „Þeir gera það alltaf,“ segir Ella María stolt.

Hún segir það vera dagskrárlið hátíðarinnar að keppa í „best skreytta húsinu.“ Í ár voru það metnaðarfullu Skagamennirnir Grímar Teitsson og Petrún Berglind Sveinsdóttir sem hlutu verðlaun fyrir best skreytta húsið 2017. Þá var Sigurður Heiðar Valgeirsson krýndur rauðhærðasti Íslendingurinn 2017.

Sigurður Heiðar Valgeirsson var krýndur rauðhærðasti Íslendingurinn 2017.Ella María Gunnarsdóttir
Lopapeysuballið er fastur liður Írskra daga. Verður fólki ekki ofboðslega heitt á ballinu? „Það fer eftir því hvað þú ert „aktívur“ á dansgólfinu. Oft og tíðum er funheitt,“ segir Ella María.



Fjölskylduhátíðin Írskir dagar býður upp á fjölbreytta skemmtun fyrir alla aldurshópa. Skagamenn segjast handvissir um að þeir séu af írskum uppruna og því flagga íbúar á Akranesi írska fánanum og skreyta með veifum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×