Mikilvægt að fræða börn og unglinga um hætturnar sem fylgja samfélagsmiðlum Ásgeir Erlendsson skrifar 13. janúar 2017 22:57
Tengsl eru milli vaxandi kvíða meðal unglingsstúlkna og aukinnar samfélagsmiðlanotkunar. Tæpur þriðjungur stúlkna í 8-10. bekk notaði samfélagsmiðla í meira en fjóra tíma á dag á síðasta ári. Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófessor við Columbia háskólann Í New York og sálfræðisvið Háskólans í Reykjavík, hefur undanfarin tuttugu ár stundað rannsóknir á líðan, hegðun og heilsu barna og unglinga. Hún flutti erindi á árlegri ráðstefnu Barna- og unglingageðdeildar Landspítalans í dag þar sem hún fjallaði um niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verið á tengslum kvíða við svefn, samfélagsmiðla og líkamsímynd. Þar kemur fram að hlutfall þeirra sem mælast með mestu kvíðaeinkennin hefur rúmlega tvöfaldast frá árinu 2012. „Við sjáum að það hefur orðið ákveðin þróun í andlegri vanlíðan þannig að kvíði hefur aukist og depurð og þunglyndi, sérstaklega meðal stúlkna, ekki þó þannig að meðaltalið hafi breyst mjög mikið en sá hópur sem er kvíðnastur og daprastur hann hefur stækkað verulega á örfáum árum,“ segir Inga Dóra. Á sama tíma hefur samfélagsmiðlanotkun vaxið hratt. Til að mynda verja 30% stúlkna í 8-10 bekk fjórum tímum eða meira á samfélagsmiðlum á degi hverjum. „Það eru tengsl þarna á milli en myndin er flókin,“ segir Inga Dóra. Fleiri þættir tengjast þessu. Svefninn og samfélagsmiðlanotkunin hangir saman að sögn Ingu Dóru. Árið 2016 sváfu rúmlega 38% stráka og 43% stúlkna um 7 klukkustundir eða skemur á hverri nóttu. „Svo er annar þáttur sem við sjáum að er lykilþáttur og það er líkamsímyndin. Þannig að samfélagsmiðlarnir, jú, eru mikilvægir, eða þeir eru miðlar, en það er þessi heimur samanburðar, þessi þörf fyrir að þurfa að fá nógu mörg læk á myndir sem er kannski skaðvaldurinn. Það er ekki fyrr en að þessi breyting verður með samfélagsmiðlunum að líkamsímyndin fer að skipta miklu máli.“ Spurningar er varða líkamsímynd unglinganna hafa verið þáttur í rannsókninni í fjölmörg ár en byrjuðu ekki að tengjast öðru fyrr en samfélagsmiðlarnir komu fram á sjónarsviðið. Inga Dóra segir mikilvægt að fræða börn og unglinga um hætturnar sem felast í notkun samfélagsmiðla. „Okkur hefur tekist vel upp á sviði vímuefnaforvarna. Nú þurfum við einfaldlega að beina athyglinni að þessu.“
Tengdar fréttir Samfélagsmiðlar ýta undir kvíða Augljós tengsl eru á milli lítils svefns og mikillar notkunar á samfélagsmiðlum og kvíða og þunglyndi hjá stúlkum í 8.-10. bekk. Stúlkum sem eru meira en sex tíma á dag á samfélagsmiðlum fjölgar. 7. október 2016 07:00 Mikil notkun samfélagsmiðla gerir ungar stúlkur þunglyndar Vaxandi vandamál er meðal stelpna í 8-10 bekk vegna kvíða og þunglyndis. Ástæðuna er hægt að rekja til mikillar notkunar samfélagsmiðla. Dæmi eru um stelpur sem sofa með símann sinn og eru þá vakandi heilu næturnar. 6. október 2016 07:00 Mest lesið Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Innlent Ökumaðurinn liðlega tvítugur Innlent Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Innlent Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ nálgast Flórída Erlent Gætu ekki flúið þótt þau vildu Erlent Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Innlent Sagðist nýlega hafa rætt við löngu látna konu sína Innlent Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Innlent Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Innlent Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Innlent Fleiri fréttir Heimilislæknar upplifi stundum pressu á að skrifa lyfin út Stefna á að opna sundlaugar í Reykjavík í fyrramálið Ísland í mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna Vísa á bug kenningu um að stjórnarsamstarfið tóri á styrkveitingum Undraverður bati með háþrýstimeðferð Þurfa ekki að greiða vegna viðskiptavina sem borguðu ekki fyrir bílastæði Kvíðin í aðdraganda hamfara og spenna í þingheimi Hagstofan biðst velvirðingar og tekur talnaefnið úr birtingu The Guardian fjallar um túrismann sem gleypi íslenska tónleikastaði Erlendur ferðamaður fannst látinn við Stuðlagil Öllum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu lokað Hlaut lífshættulega áverka vegna stunguárásar Árekstur á Eyrarbakkavegi Ríkisstarfsmenn ofmetnir um fimm þúsund Báðu um paramynd og augnabliki síðar var veskið horfið Bilun gæti valdið heitavatnsleysi víðar Hæstánægð með Höllu „Við sjáum afleiðingar þess að vinna ekki fyrir ofan fossinn“ Telur að Óli Björn líti svo á að VG hafi kastað stríðshanskanum Stjórnarsamstarfi efnislega lokið? Vongóð um að Ísland fái sæti í mannréttindaráðinu Ökumaðurinn liðlega tvítugur Réðst á fyrrverandi kærustur og aðstoðarslökkviliðsstjóra Telja óstaðbundin störf of kostnaðarsöm Kom skemmtilega á óvart að hitta Margréti Danadrottningu Ríkisstjórnin á valdi „minnsta og veikasta“ flokksins Nú má keyra á nagladekkjum í borginni Sigríður Hrönn Elíasdóttir er látin Enn eitt barnið sem dettur ofan í holu Heitavatnslaust víða í Vesturbænum Sjá meira
Samfélagsmiðlar ýta undir kvíða Augljós tengsl eru á milli lítils svefns og mikillar notkunar á samfélagsmiðlum og kvíða og þunglyndi hjá stúlkum í 8.-10. bekk. Stúlkum sem eru meira en sex tíma á dag á samfélagsmiðlum fjölgar. 7. október 2016 07:00
Mikil notkun samfélagsmiðla gerir ungar stúlkur þunglyndar Vaxandi vandamál er meðal stelpna í 8-10 bekk vegna kvíða og þunglyndis. Ástæðuna er hægt að rekja til mikillar notkunar samfélagsmiðla. Dæmi eru um stelpur sem sofa með símann sinn og eru þá vakandi heilu næturnar. 6. október 2016 07:00