Innlent

Anna og Ellisif á meðal 22 sem vilja stöðu skrifstofustjóra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Á meðal umsækjenda um starfið er Anna G. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Á meðal umsækjenda um starfið er Anna G. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar. Vísir
22 sóttu um stöðu skrifstofustjóra á skrifstofu félagsþjónustu í velferðarráðuneytinu sem auglýst var um miðjan desember síðastliðinn. Umsóknarfrestur rann út 9. janúar. Frá þessu er greint á vef ráðuneytisins.

Meginverkefni skrifstofunnar varða félagsþjónustu sveitarfélaga, barnavernd, málefni aldraðra og fatlaðs fólks, flóttafólks og innflytjenda, jafnréttismála og húsnæðismála. Ráðherra skipar í embætti skrifstofustjóra að fengnu mati þriggja manna hæfnisnefndarsamkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands.

Á meðal umsækjenda um starfið er Ellisif Tinna Víðisdóttir, sem lét af embætti framkvæmdastjóra kirkjuráðs á síðasta ári, og Anna G. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.

Umsækjendur eru eftirtaldir:

Anna G. Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri

Anna Karen Scheving Ellertsdóttir, félagsráðgjafi

Anna Rósa Guðmundsdóttir, BA í hagfræði

Árni Múli Jónasson, framkvæmdastjóri

Ása Dröfn Fox Björnsdóttir, viðskiptafræðingur

Dís Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur

Ellisif Tinna Víðisdóttir, lögfræðingur

Ellý A. Þorsteinsdóttir, skrifstofustjóri

Finnur Þ. Gunnþórsson, aðstoðarforstöðumaður

Gunnar Kristinn Þórðarson, stjórnsýslufræðingur

Gyða Hjartardóttir, sérfræðingur

Hera Ósk Einarsdóttir, sviðsstjóri

Hrafnhildur Arnkelsdóttir, sviðsstjóri

Kristín Þyri Þorsteinsdóttir, félagsráðgjafi

Lilja Margrét Hreiðarsdóttir, viðskiptafræðingur

Rún Knútsdóttir, lögfræðingur

Sigrún María Ammendrup, skrifstofustjóri

Sigrún Þórarinsdóttir, félagsmálastjóri

Sigurborg Örvarsdóttir Möller, umboðsmaður

Sigurður Már Eggertsson, rekstrarstjóri

Steinunn Jóhanna Bergmann, félagsráðgjafi

Þór Garðar Þórarinsson, sérfræðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×