Auglýsendur flýja Youtube vegna myndbanda af fáklæddum börnum Kjartan Kjartansson skrifar 24. nóvember 2017 18:55 Forsvarsmenn Youtube segjast vinna að því að bæta úr því að auglýsingar hafi birst með óviðeigandi myndböndum af börnum á síðunni. Vísir/AFP
Fyrirtæki eins og Mondelez, Lidl, Mars og fleiri hafa dregið auglýsingar sínar á myndbandasíðunni Youtube til baka eftir að greint var frá því að þær birtust með myndböndum af fáklæddum börnum. Hundruð barnaníðinga skrifuðu athugasemdir við myndböndin. Rannsókn breska blaðsins The Times sýndi að Youtube hafði leyft kynferðislegum myndum af börnum að birtast á síðunni þar sem auðvelt var að leita að þeim þrátt fyrir loforð um að fylgjast betur með efni af þessu tagi til að vernda börn. „Það ættu ekki að birtast neinar auglýsingar með þessu efni og við erum að vinna að því að laga þetta fljótt,“ segir talsmaður Youtube. Í frétt Reuters-fréttastofunnar kemur fram að sum myndböndin hafi verið með milljónir áhorfa. Svo virðist sem að börnin sjálf hafi birt myndböndin á síðunni. Í yfirlýsingu frá sælgætisframleiðandandum Mars segir að fyrirtækið sé í áfalli og hrylli við því að auglýsingar þess hafi birst með efni af þessu tagi. Í kjölfarið dró það allar auglýsingar sina á Youtube og móðurfyrirtækinu Google til baka þar til fyrirtækin hafa gert viðeigandi ráðstafanir. The Times sagði frá því að Youtube gerði ekki nóg til þess að leita að og fjarlægja óviðeigandi myndefni af börnum. Í staðinn reiði fyrirtækið sig á hugbúnaðaralgóriþma, utanaðkomandi samtök og lögreglu til að benda á það.
Mest lesið Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent „Skýr skilaboð“ Íslands og skilningur ESB en engar tryggingar Innlent Dæmdir í tengslum við einn stærsta stuld Íslandssögunnar Innlent Lækka laun bæjarfulltrúa og takmarka opnunartíma í sundi til að borga kennurum Innlent Gæti þurft að reisa varnargarða á höfuðborgarsvæðinu Innlent Ríkisstyrkir til rafbílakaupa enduðu í vasa þeirra tekjuhæstu Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira