Menning

Dálítið góður jólakokteill

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Sönghópurinn Elfur ætlar að láta raddirnar hljóma í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld.
Sönghópurinn Elfur ætlar að láta raddirnar hljóma í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld.
Sönghópurinn Elfur heldur jólatónleika í kvöld klukkan 20 í Fríkirkjunni í Reykjavík. Þar eru á ferðinni sex atvinnusöngkonur sem spanna vítt raddsvið. Þetta eru þær Hulda Dögg Proppé sópran, Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir sópran, Rakel Edda Guðmundsdóttir sópran, Auður Guðjohnsen alt, Lilja Dögg Gunnarsdóttir alt og Svanfríður Hlín Gunnarsdóttir alt.

„Þetta er dálítið góður jólakokteill,“ segir Auður um prógrammið og tekur fram að þær stöllur syngi a cappella, það er að segja tónlist sem er eingöngu fyrir raddir. „Það er ekki mikið um svoleiðis tónleika,“ bendir hún á og kveðst telja dagskrána metnaðarfulla og glæsilega. „Við syngjum jólalög í bland við önnur og þetta eru meðal annars útsetningar eftir okkur í hópnum. Við erum nokkrar þar sem erum dálítið að útsetja og græjum texta sjálfar við lög sem eru ekki með íslenskum texta.“

Þetta er greinilega fjölhæfur hópur sem gengur í verkin og gerir það sem gera þarf, meðal annars að yrkja. En er ekki eitthvað á dagskránni sem almenningur þekkir? „Jú, jú,“ svarar Auður sannfærandi.  „Þetta eru alveg lög sem fólk þekkir. Raddirnar okkar sjá bara um undirleikinn og því útsetjum við þau fyrir raddirnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.