Innlent

Vegurinn um Kjalarnes opnaður á ný

Birgir Olgeirsson skrifar
Snarpar vindhviður á svæðinu.
Snarpar vindhviður á svæðinu. Vísir/GVA
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá því að búið sé að opna fyrir umferð um Kjalarnes en veginum veginum var lokað vegna þess að stórar plötur, 25 kíló að þyngd, voru í fokhættu vegna snarpra vindhviða á svæðinu, sem náðu allt að 45 metrum á sekúndu. Plöturnar voru 30 talsins og þurfti að flytja þær á öruggan stað.

*Fréttin var síðast uppfærð klukkan 23:08




Fleiri fréttir

Sjá meira


×