Innlent

Ekið á hjólreiðamann á Selfossi

Atli Ísleifsson skrifar
Miklar umferðartafir eru þessa stundina en lokað er fyrir umferð frá Strandgötu og Lækjargötu að brúnni við Áslandshverfið.
Miklar umferðartafir eru þessa stundina en lokað er fyrir umferð frá Strandgötu og Lækjargötu að brúnni við Áslandshverfið. Vísir/Pjetur
Lögreglan á Suðurlandi leitar nú vitna að því þegar jeppling var ekið á mann á reiðhjóli á Hörðuvöllum á Selfossi skömmu fyrir klukkan ellefu í morgun.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að maðurinn sé ekki alvarlega slasaður en þó hruflaður og marinn en talin óbrotinn. Þá sé reiðhjól hans skemmt.

„Maðurinn leitaði sér læknisaðstoðar á Heilbrigðisstofnun Suðurlands eftir slysið en hins vegar mun ökumaður bílsins hafa farið af vettvangi án þess að gera grein fyrir sér.

Lögregla biður hann að hafa samband hið fyrsta vegna rannsóknar málsins.

Þá eru þeir sem hugsanlega hafa orðið vitni að slysinu beðnir að hafa samband í síma 444-2000 eða hér á Facebook eða í tölvupósti á sudurland@logreglan.is,“ segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×