Innlent

Þrír fluttir á slysadeild eftir harðan fjögurra bíla árekstur í Hafnarfirði

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Unnið er að því að opna fyrir umferð að nýju.
Unnið er að því að opna fyrir umferð að nýju. vísir/vilhelm
Þrír hafa verið fluttir á slysadeild Landspítalans eftir harðan fjögurra bíla árekstur á Reykjanesbraut um klukkan hálf níu í morgun. Beita þurfti klippum til að losa einn þeirra úr bíl sínum, en hann er talinn meira slasaður en hinir þrír.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu varð áreksturinn á Reykjanesbraut við Ásbraut, skammt frá Haukaheimilinu. Tveimur fólksbílum var ekið á rangan vegarhelming, í veg fyrir tvo vörubíla, og er lokað fyrir umferð um Reykjanesbraut frá Lækjargötu að Áslandshverfi þessa stundina.

Búist er við að opnað verði fyrir umferð að nýju um klukkan 11 í dag.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×