Innlent

Fjögurra bíla árekstur í Hafnarfirði

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Miklar umferðartafir eru þessa stundina en lokað er fyrir umferð frá Strandgötu og Lækjargötu að brúnni við Áslandshverfið.
Miklar umferðartafir eru þessa stundina en lokað er fyrir umferð frá Strandgötu og Lækjargötu að brúnni við Áslandshverfið. Vísir/Pjetur
Fjögurra bíla árekstur varð á gatnamótum Strandgötu og Lækjargötu í Hafnarfirði um klukkan hálf níu í morgun. Um er að ræða árekstur tveggja vörubíla og tveggja fólksbíla, en tveir þeirra komu úr gagnstæðri átt.

Einhver slys urðu á fólki en ekki er vitað um alvarleika þeirra að svo stöddu.

Miklar umferðartafir eru við Vellina í Hafnarfirði en lögregla stýrir umferð þessa stundina. Fólki er bent á að fara um Áslandsveg eða í gegnum miðbæ Hafnarfjarðar.

Frekari upplýsingar liggja ekki fyrir á þessu augnabliki.

Uppfært:

Þrír hafa verið fluttir á slysadeild Landspítalans, en einn þeirra er talinn mikið slasaður. Nánar hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×