Innlent

Rýmdu hótel við Klapparstíg vegna reyks

Gissur Sigurðsson skrifar
Center Hótel við Klapparstíg í Reykjavík var rýmt snemma í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um reyk í hótelinu.
Center Hótel við Klapparstíg í Reykjavík var rýmt snemma í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um reyk í hótelinu. Vísir/Stefán
Center Hótel við Klapparstíg í Reykjavík var rýmt snemma í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um reyk í hótelinu. Eldur reyndist hafa blossað upp í lyftugöngum, þar sem viðgerðramaður var við störf á fimmtu hæð, en hann náði að slökkva eldinn áður en slökkvilið kom á vettvang.

Íbúar á neðri hæðunum fengu þá að snúa til síns heima en íbúar á efstu hæðuunm þurfti að bíða þar til slökkviliðið hafði lokið við reykræstingu.

Ekki liggur fyrir hvað olli því að eldurinn blossaði upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×