Viðar Örn Kjartansson spilaði allan leikin fyrir Maccabi Tel Aviv gegn Villarreal í Evrópudeild UEFA í kvöld.
Viðari, sem var valinn í landsliðshóp Heimis Hallgrímssonar í dag, tókst ekki að skora á 90 mínútum en það gerði enginn leikmaður á vellinum og lauk með 0-0 jafntefli.
Maccabi fékk sitt fyrsta stig í riðlinum með jafnteflinu, en liðið tapaði fyrir Slavia Prague í fyrstu umferðinni.
Arnór Ingvi Traustason sat allan leikinn á bekknum þegar lið hans AEK frá Aþenu fékk fyrrum erkifjendur Arnórs, Austria Vín, í heimsókn.
Leikurinn endaði í 2-2 jafntefli. Christoph Monschein og Ismael Tajouri skoruðu fyrir gestina, en Marko Livaja skoraði bæði mörk AEK.
Jafntefli hjá Arnóri og Viðari

Tengdar fréttir

Gylfi lagði upp mark í jafntefli
Tíu menn Apollon náðu í stig gegn Everton á Goodison Park í kvöld.