„Ég elska aðdáendur mína svo mikið,“ skrifaði Smith við myndina og þakkaði auk þess dyggum aðdáanda sérstaklega fyrir blóm sem hann heldur á.
Ekki fylgir sögunni hvernig Smith áskotnaðist úlpan, sem virðist vera af gerðinni Jökla, en hann er ekki sá fyrsti sem hefur öðlast heimsfrægð og um leið klæðst fatnaði frá 66°Norður. Í fyrrasumar var rapparinn Big Sean, sem spilaði á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni, myndaður í fatnaði fyrirtækisins á ferð sinni um landið.
Smith, sem þekktastur er fyrir lög sín Stay With Me og I'm Not the Only One, er á tónleikaferðalagi um þessar mundir og spilaði í heimabæ sínum, London, um liðna helgi.
