Bíó og sjónvarp

Framleiðendur Westworld hrekktu aðdáendur hressilega

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/HBO
Framleiðendur þáttanna Westworld tóku sig til og hrekktu aðdáendur sína í gær. Lisa Joy og Johnathan Nolan, höfundar þáttanna, sögðu á Reddit í gær að í stað þess að láta áhorfendur velta vöngum yfir því hvað myndi gerast í annarri þáttaröð, myndu þau segja fólki frá öllum helstu vendipunktum þáttaraðarinnar í myndbandi. Það er, ef færsla þeirra á Reddit fengi þúsund „like“.

Í færslunni veltu þau vöngum yfir kenningum og vangaveltum áhorfenda og hvort þar væri um spennuspilla að ræða. Nefndu þau Game of Thrones þættina og hvernig þeir sem hefðu lesið bækurnar héldu því leyndu fyrir öðrum hvað myndi gerast í Westeros.

Því ætluðu þau að sýna fólki á Reddit hvernig þættirnir myndu fara og þá gætu þeir sem vissu það, varið hina frá spennuspillum.

Færslan fékk fljótt þúsund „like“ og eru þau nú tæplega þrjú þúsund, um fjórtán tímum eftir að hún var sett inn.

Lisa og Johnathan stóðu við stóru orðin og birtu myndbandið.

Þar má heyra rödd leikarans Jeffrey Wright, sem leikur Bernard, og segir hann þáttaröðina byrja á því að Bernard vakni á ströndu og viti ekki hvernig hann komst þangað. Spennan magnast í um mínútu og þá sjáum við þær Evan Rachel Wood og Angelu Sarafyan við píanó. Sarafyan spilar og Wood byrjar að syngja lagið Never Gonna Give You Up eftir Rick Astley.

Þar á eftir má sjá hund sitja við píanó í um það bil 20 mínútur.

Þeim tókst því að hrekkja þúsundir áhorfenda og aðdáenda Westworld.

Hrekkur þessi gengur undir nafninu Rickrolling og snýr hann að því að plata fólk til að hlusta á umrætt lag. Myndbandið má sjá hér að neðan en það verður að segjast að þær Sarafyan og Wood flytja lagið einkar vel.


Tengdar fréttir

Westworld: Spurningar og svör

Farið yfir spurningar sem sitja eftir þegar við hefjum hina löngu bið eftir næstu þáttaröð.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.