Innbrotsþjófarnir tveir bökkuðu bílnum ítrekað á inngang verslunarinnar, fóru inn og stálu þar kynlífsdúkku úr versluninni auk annars varning og óku á brott. Átti þetta sér stað um klukkan hálf sex í morgun.
Jóhann Karl Þórisson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að kynlífsdúkkan hefði verið í bílnum þegar hann fannst við Glæsibæ fyrr í dag.
Hann segir innbrotsþjófana ófundna og ekki sé vitað hvort um sé að ræða tvær konur eða konu og mann. Hann segir lögregluna í raun engu vísari um hverjir voru að verki.
Kynferði þjófanna liggur ekki fyrir
Í frétt Vísis í morgun, þar sem sagði af þessu harkalega innbroti, var staðhæft að um tvær stúlkur væri að ræða. Það byggði á því að ekki verður betur séð; þá er einstaklingur sem augljóslega virðist vera stúlka, kom í ofboði út úr búðinni og dröslaði með sér silikon-dúkkunni, henti henni í götuna meðan hún reyndi að opna stórskemmdan bílinn til að koma dúkkunni þar inn.Bíllinn, sem er af gerðinni Hyundai i10, var á stolnum númerum að sögn Jóhanns.
Hann segir lögreglu eiga eftir að kanna hvort eftirlitsmyndavélar séu á svæðinu þar sem bíllinn var skilinn eftir við Glæsibæ og hvort þjófarnir séu á því myndefni.
Samkvæmt upplýsingum frá eiganda verslunarinnar er það sem ræningjarnir höfðu á brott með sér sílikon-kynlífsdúkka sem kostar 350 þúsund krónur, nokkrir titrarar og sleipiefni.
Jóhann Karl gat aðeins staðfest að svo stöddu að kynlífsdúkkan væri fundin, en óvíst sé um annað þýfi.