750 ársmiðar á leiki karlalandsliðsins fara í sölu í hádeginu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2018 11:30 Íslensku strákarnir fagna hér sigri á Englendingum á EM 2016. Vísir/Getty
Knattspyrnusamband Íslands ætlar að setja fleiri ársmiða á heimaleiki Ísland í undankeppni EM 2020 í sölu í hádeginu en þúsund ársmiðar voru fljótir að fara á þriðjudaginn. KSÍ segir frá því á heimasíðu sinni að ársmiðasala á leiki Íslands í undankeppni EM 2020 haldi áfram en 750 miðum verður nú bætt við söluna. Miðasalan hefst í dag, fimmtudaginn 13. desember, klukkan 12:00 og er hún fram á tix.is. Miðasalan verður opin til 8. febrúar, eða þangað til að uppselt verður. Ekki verður bætt við fleiri miðum en þeim er fara í sölu í dag. Heimaleikir Íslands verða 8. júní á móti Albaníu, 11. júní á móti Tyrklandi, 7. september á móti Moldóvu, 11. október á móti Frakklandi og 14. október á móti Andorra. Þeir sem keyptu ársmiðana á þriðjudaginn fá þá afhenta eða senda í pósti í gjafaöskju með óvæntum glaðningi. „Tilvalin jólagjöf fyrir allt knattspyrnuáhugafólk!,“ eins og kom fram í frétt á ksi.is um söluna. Auk þess að tryggja ársmiðahafa sæti á öllum heimaleikjum Íslands í undankeppni EM 2020 fá korthafar aðgang að opinni æfingu liðsins á árinu 2019. Errea veitir ársmiðahöfum líka fimmtán prósent afslátt af landsliðsvörum. Þá geta heppnir ársmiðkaupendur átt von á að vinna baksviðspassa Vodafone á heimaleikjum.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti Kristinn: Við vorum geggjaðir Körfubolti Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Enski boltinn Uppgjör: Ítalía - Ísland 74-81 | Strákarnir sóttu sigur í gin ljónsins Körfubolti Elvar: Við erum kannski bara svona skemmtilega vitlausir Körfubolti Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Fótbolti Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Íslenski boltinn Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Fótbolti Hareide hættur með landsliðið Fótbolti Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Fótbolti Fleiri fréttir Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Refirnir skemmtu sér í Köben eftir tapið sem kostaði þjálfarann starfið Elías Rafn hélt hreinu þegar meistararnir jöfnuðu toppliðið að stigum Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Kveðst frekar vilja íslenskan þjálfara Hamrarnir unnu óvæntan sigur í norðrinu Þríeykið rennur allt út á samning næsta sumar Potter orðaður við Leicester á nýjan leik Hareide hugsaði um heilsuna: „Vildi einbeita sér að því“ Hareide hættur með landsliðið Grindvíkingar þétta raðirnar Ed Sheeran biðst afsökunar á að hafa verið óboðinn gestur í viðtali við Amorim Vinícius Júnior missir af leiknum á móti Liverpool Ekkert lið með meiri forystu síðan Cantona var upp á sitt besta Tólf leikmenn komnir til KR Roy Keane reiður: Hittu mig bara á bílastæðinu Segist enn ekki hafa fengið samningstilboð frá Liverpool Geir fer aftur í Vesturbæinn Heimsklassa afgreiðsla hjá Sveindísi um helgina Dagur Dan og félagar í undanúrslit eftir sigur á liðinu sem stoppaði Messi „Liverpool má alls ekki leyfa Salah að yfirgefa Anfield“ FH-ingar kynntu Birki og Braga „Við munum þurfa að þjást í langan tíma“ Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Sjá meira