Tvö frábær mörk í jafntefli Spurs og West Ham á Wembley Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2018 21:00 Heung-min Son fagnar jöfnunarmarkinu sínu. vísir/getty Tottenham og West Ham gerðu 1-1 jafntefli í Lundúnaslag á Wembley í kvöld í lokaleik 22. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Bæði lið skoruðu tvö stórglæsileg mörk með langskotum í seinni hálfleik sem lífguðu heldur betur upp á daufan leik. Framan af leik var ekki mikið að gerast í leiknum en það breyttist allt á síðustu tuttugu mínútunum. Tottenham var miklu hættulegra allan leikinn enda spiluðu gestirnir stífan varnarleik allan leikinn. Pedro Obiang kom samt West Ham yfir á 70. mínútu með frábæru skoti af 25 metra færi sem Hugo Lloris átti ekki möguleika að verja. Þetta var fyrsta tilraun West Ham í leiknum. Tottenham svaraði fjórtán mínútum síðar en nú var það Heung-min Son sem lét vaða af 25 metra færi og boltinn þandi netmöskvanna. Tottenham átti möguleika á að vinna fjórða deildarleikinn sinn í röð og nálgast efstu liðin en sá á eftir tveimur stigum á heimavelli. Tottenham er því áfram í fimmta sæti deildarinnar, nú þremur stigum á eftir Liverpool sem er í fjórða sætinu. West Ham komst upp fyrir Bournemouth og í fimmtánda sæti deildarinne en liðið er nú tveimur stigum frá fallsæti. West Ham hefur aðeins tapað einu sinni í síðustu sjö leikjum sínum. Enski boltinn
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport
Dagskráin í dag: Meistarakeppni KKÍ, 50 milljón króna leikurinn og stórleikir í Bestu kvenna Sport