Ferðamaður sem vildi ekki greiða gjald til þess að innrita tösku sína í Flugstöð Leifs Eiríkssonar í vikunni greip til þess ráðs að klæða sig í átta buxur og tíu boli eða peysur úr töskunni til að sleppa við gjaldið.
Var honum vísað frá flugi og gerð grein fyrir því að hann gæti skapað hættu fyrir aðra farþega þar sem hann gæti tæpast hreyft sig þar sem hann væru svo dúðaður í fatnað, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þessu snöggreiddist maðurinn, sló í borð og lét öllum illum látum svo lögreglan var kvödd á staðinn. Var maðurinn handtekinn og færður á lögreglustöð.
Klæddi sig í átta buxur og tíu boli til að komast undan töskugjaldi
Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
