Eftir langt hlé hófst áætlunarflug að nýju til Sauðárkróks í vetur en nítján sæta vélar Flugfélagsins Ernis fljúga fjórum sinnum í viku úr Reykjavík. Freyja Rós Ásdísardóttir, starfsmaður Ernis á Sauðárkróki, segir það hafa verið í desember sem þessi hálfs árs tilraun hófst.
„Það er bara æðislegt að sjá upplifun allra. Þegar ljósin kvikna á vellinum og vélin kemur inn og fólk heyrir í vélinni.
En það má nota þetta meira. Þetta er ekki alveg að fara nógu vel af stað. En eitthvað þó,“ segir Freyja Rós og bætir við að slæmt veður í janúar og febrúar hafi sett verulegt strik í reikninginn.

„Flugið tekur 35 mínútur á meðan þú ert að minnsta kosti þrjá og hálfan tíma að keyra,“ segir Ásta.
En hverjir eru að nota flugið?
„Það eru eiginlega allir. Einstaklingar. Það eru börn að fara til foreldra. Fyrirtækin eru mjög mikið að nota þetta,“ svarar Freyja Rós.

„Við teljum það. Við teljum að það þurfi ekki mjög mikið að gera og við höfum verið að tala fyrir því að þetta gæti orðið varaflugvöllur fyrir Akureyri. Því að öll viljum við jú dreifa ferðamanninum um landið.
Það er byrjað flug á Akureyri, sem er bara mjög af hinu góða. Við teljum að við gætum þjónað Norðurlandi mjög vel ef hér yrði varaflugvöllur, til dæmis,“ segir sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2: