Innlent

Skemmdarverk unnin á æfingasvæðum Keflavíkur og Njarðvíkur

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Rúður voru brotnar og salerni stífluð.
Rúður voru brotnar og salerni stífluð. Mynd/Lögreglan á Suðurnesjum
Skemmdarverk voru unnin á á æfingasvæðum Keflavíkur og Njarðvíkur við Afreksbraut í Reyjanesbæ á dögunum. Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir vitnum sem veit geta upplýsingar um skemmdarverkin.

Á myndum sem lögreglan birtir á Facebook má sjá að rúður voru brotnar, salerni og vaskar stíflur veggir spreyjaðir. Svo virðist einnig sem að skemmdarvargarnir hafi haft hægðir á salernisgólfinu.

Biður lögregla íbúa í Reykjanesbæ sem og aðra að skoða myndirnar sem sjá mér að neðan vel og vandlega í von um að fá upplýsingar um þá sem voru að verki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×