Það var mikil dramatík strax í upphafi. Nico Hulkenberg náði ekki að bremsa fyrir fyrstu beygjuna, negldi bíl sínum aftan á Fernando Alonso sem flaug yfir pakkann og tók Charles Leclerc út.
Mikil læti og dramatík og Leclerc má þakka nýju „geislabaugunum“ sem voru settir á bílana fyrir þetta tímabil fyrir að hann sé á lífi. Bíll Alonso skall á geislabaugnum og hefði annars farið beint í höfuð Leclerc.
Lap 1/44: Chaos at the start - Leclerc, Alonso and Hulkenberg out #BelgianGP #F1pic.twitter.com/ZKu2RlVrLK
— Formula 1 (@F1) August 26, 2018
Kimi Raikkonen hvellsprengdi dekk og drógst lang á eftir keppinautum sínum þar sem brautin er löng og hann komst ekki inn á þjónustusvæðið strax. Bíll hans skemmdist einnig eitthvað í látunum og hann þurfti að hætta eftir 7 hringi.
Red Bull bíll Daniel Ricciardo stórskemmdist og hann þurfti að hætta. Starfsmenn Red Bull náðu að laga bílinn aðeins og sendu Ricciardo aftur út í brautina nokkrum hringjum seinna. Hann kláraði hins vegar ekki keppni og hætti eftir 28 hringi.
Hamilton byrjaði á ráspól en Vettel náði að fara fram úr honum strax á fyrsta hring áður en öryggisbíllinn var settur út á brautina. Eftir það átti Vettel nokkuð rólegan dag í forystunni. Hamilton reyndi aðeins að sækja á hann en Vettel réð við öll áhlaup Bretans.
Hamilton er nú aðeins með 17 stiga forskot á Vettel í baráttunni um heimsmeistaratitilinn.
BREAKING: Sebastian Vettel wins the #BelgianGP - his third win at Spa, his fifth this season, and the 52nd of his career #F1 pic.twitter.com/AY0nmkP3A5
— Formula 1 (@F1) August 26, 2018