Innlent

Líkamsárásir og eignaspjöll í miðborginni í morgun

Andri Eysteinsson skrifar
Einn var handtekinn fyrir líkamsárás en þrír grunaðir voru horfnir af vettvangi þegar að lögreglu bar að garði
Einn var handtekinn fyrir líkamsárás en þrír grunaðir voru horfnir af vettvangi þegar að lögreglu bar að garði Vísir/Vilhelm
Lögreglu var tilkynnt um tvær líkamsárásir með stuttu millibili í miðborginni í nótt, þrír aðilar höfðu ráðist á karlmann um klukkan fimm í morgun, þegar lögreglu bar að garði voru ofbeldismennirnir flúnir af vettvangi. Þetta kemur fram í dagbók Lögreglu.

Einn maður var handtekinn vegna annarrar líkamsárásar en þar var þolandi fluttur með sjúkrabíl til skoðunar og aðhlynningar á slysadeild LSH.

Lögregla hafði í nógu að snúast í miðborginni í morgun en tilkynnt var um tvö innbrot í bíla sem og um eignaspjöll á bíl, hafði þar meðal annars verið brotin rúða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×