Lífið

Danny Boyle stígur til hliðar sem leikstjóri næstu Bond-myndar

Sylvía Hall skrifar
Leikstjórinn er sagður mikill aðdáandi Bond-myndanna, en hann hefur stigið til hliðar sem leikstjóri þeirrar næstu.
Leikstjórinn er sagður mikill aðdáandi Bond-myndanna, en hann hefur stigið til hliðar sem leikstjóri þeirrar næstu. Vísir/Getty
Óskarsverðlaunahafinn Danny Boyle mun ekki leikstýra næstu James Bond mynd, Bond 25, eins og áætlað var. Þetta var tilkynnt fyrr í dag af framleiðendum myndarinnar og Daniel Craig, sem leikur sjálfan Bond

Í stuttri yfirlýsingu sem birt var á Twitter-reikningi myndarinnar segir að ástæðan fyrir brotthvarfi leikstjórans sé listrænn ágreiningur á milli framleiðanda og Boyle.



Leikstjórinn, sem vann Óskarsverðlaunin árið 2009 fyrir leikstjórn á myndinni Slumdog Millionaire, tilkynnti í mars á þessu ári að hann ynni nú að handriti nýrrar Bond-myndar, og yrði það fyrir valinu færi Boyle með leikstjórn myndarinnar. 

Bond 25 hefur vakið mikið umtal og eftirvæntingu, en stefnt er að því að frumsýna myndina í nóvember 2019 og verður þetta síðasta mynd Daniel Craig í hlutverki hins sívinsæla James Bond.  

Boyle hefur áður leikstýrt Craig þegar hann hafði umsjón með opnunaratriði Ólympíuleikanna í London árið 2012 og brá Craig þar fyrir í hlutverki spæjarans fræga. Það er því ljóst að næsta samstarf þeirra félaga þarf að bíða betri tíma. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.