Lífið

Piparsveinninn umdeildi og unnustan spóka sig á Laugaveginum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arie er mættur með konunni sinni.
Arie er mættur með konunni sinni.
Þættirnir The Bachelor njóta sífellt meiri vinsælda um heim allan og sérstaklega í Bandaríkjunum.

Á dögunum kláraðist 22. þáttaröðin og gaf Arie Luyendyk Jr. út síðustu rósina. Hann mætti ásamt unnustu sinni í spjallþátt Jimmy Kimmel í vikunni og ræddu þau tvö saman um þáttinn og framtíðina.

Höskuldarviðvörun: Þeir sem hafa ekki horf á nýjustu þáttaröðina af The Bachelor og vilja alls ekki vita hvaða konu Arie valdi þurfa að hætta að lesa strax.

.

.

.

.

.

Það er búið að vara þig við.

.

.

.

.

.

.

Sjá einnig: Óvæntustu endalok allra tíma í The Bachelor

Arie valdi á dögunum konu sem ber nafnið Becca Kufrin. Því varð Luyendyk að tilkynna Lauren B að hún hefði ekki orðið fyrir valinu.

Hann ákvað síðan að skipta um skoðun og endaði á því að biðja Lauren B um að giftast sér. Lauren B hafnaði í raun í öðru sæti í þáttunum en stóð uppi sem sigurvegari að lokum og með kallinn sér við hlið. 
Arie og Lauren að spóka sig á Laugaveginum.
Nýtrúlofaða parið hefur verið í viðtölum út um allt í fjölmiðlum vestanhafs og þurft að svara allskyns spurningum.

Á dögunum mætti þau í Good Morning America og tóku þátt í leik baksviðs sem ber nafnið Newlywed Bliss or Total Miss. 

Í því viðtali kom í ljós að parið var á leiðinni til landsins og eru þau mætt. 

Aðdáendur þáttanna hafa séð þau Arie og Lauren B saman að spóka sig á Laugaveginum og í verslunarferð í Cintamani í miðbænum.

Hér að neðan má sjá mynd af parinu og myndbönd. 

Hér má sjá skötuhjúin á Leifsstöð í morgun.
Það virðist fara vel um parið hér á landi.

Spurning hvort þau versli sér Cintamani-föt.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.