Íþróttadeild spáir FH 3. sæti Pepsi-deildarinnar í sumar en þar endaði liðið í fyrra eftir að hafa hafnað í fyrsta eða öðru sæti árlega frá því 2003. FH-ingar náðu ekki einu sinni að bjarga tímabilinu með bikarsigri því þeir töpuðu úrslitaleik á móti ÍBV. Tímamót eru hjá FH-liðinu eftir brotthvarf Heimis Guðjónssonar og miklar mannabreytingar hafa orðið í Hafnarfirðinum. Spurningin er hvort FH-liðið nái að keyra sig í gang strax frá fyrsta leik og missa ekki Valsmennina of langt frá sér.
Það sem vakti einna helst athygli í fyrra var dapurt gengi FH á heimavelli en vanalega voru lið búin að gefast upp áður en þau stigu fæti út á grasið í Kaplakrika. FH-ingar höfðu í tólf liða deild mest tapað tveimur leikjum í Krikanum en töpuðu fjórum af ellefu á síðustu leiktíð og unnu aðeins fimm. Heimavöllurinn er vígi sem nýr þjálfari þarf að koma mönnum í skilning um að þurfi að vernda eins og á árum áður.
Þjálfari FH er Ólafur Kristjánsson en þessi uppaldi fyrrverandi leikmaður er nú kominn heim í Kaplakrika eftir nokkurra ára dvöl í atvinnumennsku í Danmörku. Ólafur er einn allra færasti þjálfari landsins og búist er við miklu af honum í hvíta og svarta hluta Hafnarfjarðar. Hann hefur fengið að leika lausum hala á leikmannamarkaðnum til að búa til sitt lið og það gæti tekið sinn tíma.
Svona munum við eftir FH
Heimir Guðjónsson var búinn að vera stór hluti af FH-liðinu frá aldamótum sem leikmaður, aðstoðarþjálfari og svo þjálfari og ná ótrúlegum árangri. Nú er komið að vatnaskilum hjá FH sem þakkar Heimi fyrir flott starf.
Liðið og leikmenn

Þrír sem FH treystir á:
Gunnar Nielsen: Færeyski landsliðsmarkvörðurinn átti ekki alveg jafngott tímabil í fyrra og árið þar á undan en hann er samt sem áður einn allra besti markvörður deildarinnar. Enn meiri ábyrgð hvílir á herðum hans þetta sumarið þar sem að FH-liðið mætir með nánast algjörlega nýja varnarlínu til leiks.
Pétur Viðarsson: Eini maðurinn sem eftir er í varnarlínu FH er uppalinn og brennir fyrir félagið. Pétur er maður sem skilur um hvað FH snýst og tekur enga fanga inn á vellinum. Hann þarf að vera leiðtoginn í varnarleiknum hjá FH ef það ætlar sér alvöru baráttu um Íslandsmeistaratitilinn.
Geoffrey Castillion: FH skoraði aðeins 33 mörk í fyrra sem var tíu færri en topplið Vals og þrettán færri en Stjarnan sem hafnaði í öðru sæti. Liðið þarf að skora fleiri mörk og til þess var fenginn Hollendingurinn stóri sem raðaði inn fyrir Víking í botnbaráttunni í fyrra. Castillion hefur verið slakur á undirbúningstímabilinu en FH þarf á því að halda að hann fari í gang þegar hann kemur inn í mótið.
Markaðurinn

Ólafur nældi sér í tvo Blika sem hann gerði að Íslandsmeisturum fyrir átta árum síðan en þeir voru að koma heim úr atvinnumennsku. Hjörtur Logi var besti bakvörður deildarinnar áður en hann fór út og ekki er kominn slakari liðsstyrkur í hægri bakvörðinn á láni frá Brann.
Ólafur hefur náð að fylla í allar stöður og er komin mikil samkeppni t.d. á miðjuna þar sem frábærir leikmenn þurfa að gera sér það að góðu að sitja á bekknum.
Markaðseinkunn: A+
Hvað segir sérfræðingurinn?
„Það er spurning hvort FH nái að koma inn af krafti í mótið eftir lélegt undirbúningstímabil. FH hefur ekki verið neðar en í þriðja sæti í langan tíma þannig ljóst er að á hverju einasta ári ætlar FH sér að berjast um titilinn.“
„Nú er þetta spurning hvernig reynsluboltarnir í liðinu koma til með að spila. FH verður ofarlega en svo kemur í ljós hvort það sé tilbúið í baráttuna við Valsmenn,“ segir Gunnar Jarl Jónsson.
Spurt og svarað

Spurningamerkin eru … hvernig nánast algjörlega ný varnarlína kemur til með að standa sig. Ólafur náði ekki að stilla upp varnarlínu skipaða bara varnarmönnum í einum einasta leik fyrir mót en nú getur hann á pappír sett upp það sem gæti orðið besta vörn landsins. Frammistaða liðsins á undirbúningstímabilinu hefur verið vægast sagt slök og Castillion varla skapað sér færi, hvað þá skorað mark. Það er stórt spurningamerki hvort FH setji bara í fimmta gír strax í byrjun móts eftir að vera nánast í hlutlausum í allan vetur
Binni bjartsýni og Siggi svartsýni
Við gætum unnið mótið með aðalliðinu okkar og verið í Evrópubaráttu með þeim sem eru á bekknum og komast ekki í hóp. Þessum hópi stýrir svo besti þjálfari landsins sem vinnur fyrir besta formann landsins við bestu umgjörð landsins á flottasta velli landsins. Valsmenn geta alveg eins skilað þessum bikar núna strax.
Siggi: Við þurfum að skora mörk ef við ætlum að hafa betur í baráttunni við Val. Átta mörk í fimm leikjum í Lengjubikarnum þar sem Castillion snerti varla boltann inn í teig er varla til útflutnings og við höfum ekki náð einum einasta góða leik þar sem við höfum skellt einhverjum smápeðum í Inkasso-deildinni.
Ég átta mig alveg á því að við verðum í toppbaráttunni en ekki einu sinni Ólafur Kristjánsson ræður við svona breytingar. Ríflega helmingur byrjunarliðsins á móti Grindavík verður skipað nýjum leikmönnum sem hafa ekki verið sannfærandi í vetur. Við lendum í eltingaleik snemma en endum í öðru sæti. Vinnum þetta svo að ári liðnu.