Olíuverslunin N1 ákvað í gær að afturkalla tilkynningu til Samkeppniseftirlitsins vegna samruna við Festi, sem rekur meðal annars Krónuna og Nóatún. Samkeppniseftirlitið hefur undanfarið haft samruna fyrirtækjanna til rannsóknar á grundvelli samrunatilkynningar sem send var eftirlitinu 31. október síðastliðinn. Var rannsókn málsins á lokastigi og er ákvörðunar að vænta í dag.
Samdægurs upplýstu forsvarsmenn N1 Samkeppniseftirlitið um að félagið hygðist tilkynna aftur um samrunann. Hefur N1 boðað að í nýja málinu muni fyrirtækið leggja fram tillögur að skilyrðum sem ætlað er að eyða þeim samkeppnishindrunum sem Samkeppniseftirlitið telur að stafað gætu af samrunanum.
Hinn 8. mars síðastliðinn drógu Hagar, sem reka meðal annars Bónus og Hagkaup, til baka samrunatilkynningu sem hafði verið send Samkeppniseftirlitinu vegna fyrirhugaðrar sameiningar við Olís og fasteignafélagið DGV. Þá var líka tilkynnt að ný samrunatilkynning yrði send innan skamms.
Við það tækifæri sagði Eggert B. Ólafsson, lögmaður og sérfræðingur á sviði samkeppnisréttar, að hann byggist við því að ef af þeirri sameiningu yrði þyrfti nýtt fyrirtæki væntanlega að losa um eignir. Mögulega þyrftu Olís og N1 að skipta upp Olíudreifingu.

