Sléttbakar í hættu á útrýmingu í Norður-Atlantshafi Kjartan Kjartansson skrifar 27. febrúar 2018 10:17 Tvær tegundir sléttbaka er að finna á norðurhveli jarðar og ein á suðurhveli. Vísir/Getty
Útlit er fyrir að engir sléttbakskálfar komi undir á fengitími hvalanna nú. Sérfræðingar vara við því að stofninn gæti horfið algerlega á næstu tuttugu árunum ef menn grípa ekki inn í.The Guardian greinir frá því að vísindamenn sem fylgjast með hvölum við austurströnd Bandaríkjanna hafi ekki séð neina kálfa í vetur. Það kemur í kjölfar metfjölda í afföllum í stofninum í fyrra. Vísindamennirnir telja að aðeins 430 Norður-Atlantshafssléttbakar gætu verið eftir í heiminum og aðeins um hundrað kvendýr. Hvölunum stendur ógn af umsvifum manna á ýmsan hátt. Þeir drepast meðal annars þegar þeir festast í reipum humarveiðimanna. Rannsóknir benda til þess að 82% ótímabærra dauðsfalla sléttbaka séu af völdum veiðarfæra manna. Þá eru hvalirnir sagðir eiga erfiðara með að afla sér fæðu í hlýnandi hafinu. Mark Baumgartner, sjávarvistfræðingur við Woods Hole-haffræðistofnunina í Massachusetts í Bandaríkjunum, varar við því að sléttbakarnir gætu horfið með öllu fyrir árið 2040. Hann vill að bandarísk stjórnvöld grípi til aðgerða og setji reglur um veiðfarfæri. Hvaladauði er sagður hafa aukist verulega eftir að humarveiði menn byrjuðu að nota sterkari reipi fyrir nokkrum árum. Hvalir sem festast í þeim eigi nú mun erfiðara með að leysa sig.
Umhverfismál Mest lesið Ekki lengur hægt að breiða yfir sannleikann Innlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Spjótin beinast að syni Reiners Erlent Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Sinntu fimmtán málum í tengslum við Iceguys tónleikana Innlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Erlent Fleiri fréttir Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Sjá meira